Óvenju há sjávarstaða dagana eftir fullt tungl í janúar, febrúar og mars 2011

3 views
Skip to first unread message

Björg Aðalheiður Jónsdóttir

unread,
Jan 25, 2011, 8:23:06 AM1/25/11
to Vatna
17.1.2011
Landhelgisgæslan vekur athygli á óvenju hárri sjávarstöðu dagana eftir
fullt tungl í janúar, febrúar og mars 2011. Flóðspá fyrir Reykjavík
gerir ráð fyrir óvenju hárri sjávarstöðu á fullu tungli í janúar,
febrúar og mars.Ástæða er til að fylgjast vel með veðurspá og
loftþrýstingi þessa daga og jafnframt dagana fyrir og eftir fullt
tungl.
Mynd 1

Breytingar á veðri valda mismun á útreiknuðum og raunverulegum
sjávarföllum því töflur yfir sjávarföll eru reiknuð út miðað við
„venjuleg“ veðurskilyrði og meðalloftþyngd sem er við sjávarmál 1013
hPa (millibör). Falli loftvog t.d. um 10 hPa má búast við hækkun
sjávaryfirborðs um 0,1 m og öfugt. Blási af hafi og sé loftþrýstingur
lágur, mun sjávarhæðin vera meiri en taflan sýnir, og á hinn bóginn
minni með frálandsvindi og háum loftþrýstingi.
Ástæður óvenju hárrar sjávarstöðu núna er að tunglið verður eins
nálægt jörðu og það getur orðið þann 19 mars. Þá verður það í um 357
þús kílómetrar fjarlægð frá jörðu. Tunglið er að meðaltali um 384.400
km frá jörðu en mest getur fjarlægðin verið um 407 þúsund km.
Breytileg fjarlægð tungls frá jörðu hefur áhrif á sjávarhæð.
mynd 2
Einnig er vert að benda á að sjávarstaðan verður mjög lág þessa daga
eins og sjá má á töflu. Það er því upplagt fyrir „fjörulalla“ að fara
í fjöruskoðun ef veður er gott.

http://lhg.is/frettirogutgafa/frettir/nr/1792
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages