Nú er leikjum sumarsins farið að fækka þó að nokkrir mikilvægir leikir séu
eftir. Á laugardaginn er stór dagur í félaginu því þá spila mfl. kvenna og
karla mikilvæga leiki. Mfl.kv. spilar við Stjörnuna á Vodafone vellinum kl.
13 og hefur gott sem tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn, verður titillinn
afhentur í lok leiks.
Á laugardagsmorguninn kl. 10:15 spilar 4.fl. kv. úrslitaleik um
Íslandsmeistaratitilinn á Vodafone vellinum og kl. 16 verður svo leikur FH
og Vals í Kaplakrika þar sem frítt verður inn. Að auki leikur 3.fl.kv.
úrslitaleik í bikar í Kaplakrika kl. 14 á sunnudag.
Eins og sjá má verður margt að gerast og vil ég hvetja ykkur til að láta sjá
ykkur og fá flokkana til að mæta á leikina og skapa stemmningu. Mætum í
rauðu og látum í okkur heyra.
Kveðja,
Ragnhildur Skúladóttir
Yfirmaður barna og unglingasviðs
Knattspyrnufélagið VALUR
ü <http://www.valur.is/> www.valur.is
cid:image0...@01C7EBB1.364811A0
Skrifstofa Vals: Vodafonehöllin Hlíðarenda 101 Reykjavík