Ef íbúðinni hefði fylgt viðhaldsbók...
26 views
Skip to first unread message
Þóra
unread,
Feb 3, 2008, 7:41:20 AM2/3/08
to Notendahópur V3.is
Hjón í Reykjavík keyptu sér íbúð á annarri hæð í litlu fjölbýli.
Íbúðin leit vel út með parketi á stofunni. Parketið leit út fyrir að
vera nýlegt en eitthvað fannst fólkinu vera að því. Þau fóru því í það
að taka upp parketið af gólfinu. Þá kom í ljós að undir parketið hafði
verið lagður plastdúkur. Þetta fannst þeim auðvitað frekar skrítið.
Undir plastdúknum kom í ljós raki. Í stað þess að uppræta þennan raka
þegar parketið hafði verið lagt á sínum tíma, var bara plast lagt yfir
gólfið til að hlífa nýja parketinu.
Við nánari skoðun kom í ljós að rakinn stafaði af leka í gegnum
sprungu í útvegg. Þetta dæmi sýnir ókunnugleika á eðli málsins. Ávalt
skal finna og stoppa leka, þegar hans verður vart. Sama þótt það kosti
húseigandann meiri útjöld og tafir, aldrei skal reyna að fela leka með
því að setja yfir hann plast, dúk eða reyna að klæða hann á einhvern
hátt af. Rakinn er jafn slæmur þótt hann sjáist ekki um stund, en hann
kemur fram fyrr eða síðar, t.d. við næstu framkvæmdir eða lyktin sem
fylgir rakaskemmdum fer að gera vart við sig. Mygla fylgir gjarnan
raka.
Það skal einnig tekið fram að í fjölbýlishúsum er kostnaður vegna
viðgerða á sprungum í útveggjum oftast sameiginlegur. Ef raki er í
vegg og eigandi eignar telur að það sé vegna sprungu í útvegg, á hann
að taka málið upp á húsfundi. Ef skemmdir eru farnar að gera vart við
sig er oftast ekki eftir neinu að bíða, heldur að fá húsfélagið að
ganga í málið. Raki í vegg getur einnig stafað af leku röri eða óþéttu
baðherbergi í íbúð fyrir ofan viðkomandi vegg.
Reglan er að ef vart verður við raka við einhverjar framkvæmdir, skal
finna hvaðan hann kemur og ráðast í viðgerðir til að losna við hann!
Ef þessari íbúð hefði tilheyrt viðhaldsbók, sem hefði verið
samviskusamlega fyllt út, þá hefði í henni væntanlega komið fram að
plast hefði verið lagt undir parketið. Þá hefðu núverandi kaupendur
getað spurt nánar um þetta, hvers vegna var plast lagt undir parketið?
Því slíkt gerir væntanlega ungur fasteignaeigandi sem hefur litla
reynslu af viðhaldi og veit ekki hvað hann er að gera og gerir það
væntanlega í góðri trú. Lykilatriðið við viðhaldsframkvæmdir er að
vita hvernig var verkið unnið, hverjir unnu það og hvaða efni var
notað. Eigandi sem heldur vel utan um allar sínar framkvæmdir og getur
sýnt viðhaldsbókina sína þegar hann selur eignina sína, leggur spilin
á borðið. Hann fær væntanlega síður á sig ásakanir um að hann hafi
haldið mikilvægum upplýsingum leyndum með tilheyrandi fundum með
lögfræðingum til að leita sátta.
Húseigendur, það er aldrei of seint að byrja að færa viðhaldið sitt
endurgjalds.
Kveðja, V3.is - Viðhaldsbók
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages