Gleðilegt nýtt ár!

5 views
Skip to first unread message

Þóra

unread,
Jan 1, 2008, 10:01:37 AM1/1/08
to Notendahópur V3.is
Kæri notandi www.V3.is.
V3.is óskar ykkur öllum gleðilegs nýs árs.

Árið 2008 er gengið í garð og við hæfi að líta yfir það sem áunnist
hefur á árinu 2007. Í febrúar 2007 var fyrirtækið Viðhaldsbók ehf
stofnað. Um vorið leit fyrsta útgáfa vefsins www.vidhaldsbok.is
dagsins ljós. Fljótlega var fjárfest í léninu V3.is og sótt um
skrásetningu merkisins V3 til Einkaleyfastofu. V3 var skrásett sem
vörumerki á árinu.

V3 stendur fyrir þrjár rafrænar bækur, sem eru aðgengilegar notendum í
gegnum vefinn www.V3.is. Bækurnar eru: Viðhaldsbók
fasteignaeigandans, viðhaldsbók húsfélagsins og verkbók fagmannsins.

Megin þungi vinnunnar við vefinn á árinu 2007 hefur verið að fá fram
lágmarksvirkni, fá ákveðin atriði til að virka. Flest þessara atriða
eru komin inn og virka. Minni áhersla var lögð á útlitið á vefnum,
fyrr en í lok ársins en þá var athyglinni beint að útlitinu. Vinna við
það svo og áframhaldandi vinna með virkni vefsins heldur áfram á nýju
ári.

Eftirfarandi eru megin atriðin sem náðst hafa á árinu 2007:

A. Vefurinn www.V3.is eða www.vidhaldsbok.is er kominn í loftið

B. Fasteignaeigendur geta skráð hjá sér í gagnagrunn, upplýsingar um
viðhald sem þeir standa fyrir á eignum sínum. Auk þess skrá þeir hjá
sér upplýsingar um fagmenn sína og mæla með þeim ef þeir eru ánægðir
með þá. Allir geta farið á vefinn og leitað sér að fagmanni sem
húseigendurm mæla með

C. Eigandi eignar í húsfélagi getur skráð kennitölu húsfélagsins á
eignalistann sinn og fengið aðgang að viðhaldsbók húsfélagsins. Hann
getur skráð í hana viðhaldsverk og fleira sem snýr að húsfélaginu

D. Fagmaður getur skráð upplýsingar um sig og þjónustu sem hann býður
upp á. Allir geta leitað að fagmanni sem skráir sig á V3.is

E. V3 vaktin er bloggsíða V3 þar sem ýmsum upplýsingum er komið á
framfæri

F. www.Spjallbord.com er spjallborð á vegum V3.is. Þar geta
fasteignaeigendur, fagmenn og þeir sem áhuga hafa á málefninu,
spjallað um allt sem snýr að fasteignum, viðhaldi þeirra og málefni
því tengd

G. V3 pósthópur hefur verið stofnaður. Þeir sem óska eftir að vera í
pósthópi og fá öðru hvoru fréttir af V3.is, geta skráð sig í
pósthópinn með því að fylla út beiðni um aðgang á eftirfarandi slóð:
http://groups.google.com/group/v3is

H. Finna leið. Vegvísun á netinu. Notandi velur upphafsstað og
áfangastað eru tilteknir, birtist kort sem sýnir leiðina milli tveggja
staða. Notandinn flyst yfir á vef Map24 og kortið birtist þar

Ýmislegt fleira hefur verið á dagskránni á árinu og má þar nefna
fróðleikskaflann og möguleikann að opna viðhaldsbók eignar sem er í
sölu.

Markmið ársins 2008 er að þróa vefinn áfram og koma honum betur á
framfæri.

Fyrir hönd V3.is - Viðhaldsbókar ehf, sendi ég ykkur öllum mínar bestu
kveðjur.

Þóra Jónsdóttir, tölvunarfræðingur
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages