Er V3.is - Viðhaldsbók vistvæn

6 views
Skip to first unread message

Þóra

unread,
Nov 25, 2007, 11:12:29 AM11/25/07
to Notendahópur V3.is
Umhverfismál og vistvænar vörur eru ofarlega á baugi nú til dags. Við
eigum bara eina jörð og við verðum að fara vel með hana. Um þetta ættu
fasteignaeigendur að hugsa þegar ráðist er í það að henda öllu út úr
eign sem viðkomandi hefur nýlega fest kaup á. Við skulum staldra við,
það er ekki bara að slíkt kostar okkur viðbótarútgjöld, við erum ekki
sérlega umhverfisvæn ef við gerum þetta. Ef við viljum hafa allt nýtt
í kringum okkur, af hverju kaupum við okkur ekki frekar nýtt hús eða
byggjum það sjálf?

Oft er afsökunin sú, að þetta sé allt saman gamalt drasl! En er það
svo? Oft eru innréttingar og gólfefni alls ekki svo gömul, það veit
bara enginn hve gömul eða úr hverju hlutirnir eru. Þennan hugsunarhátt
vill V3.is hafa áhrif á, með því að stuðla að því að fasteignaeigendur
haldi bókhald yfir það sem þeir gera við í húsunum sínum. Þannig gefa
þeir þeim sem á eftir koma tækifæri til að sjá hve gamlir hlutirnir
eru. Og vinna þannig að því að hlutum sé ekki hent vegna þess að nýr
eigandi heldur að hann sé gamall. Ef það er staðreynd, að viðkomandi
hlutur er ekki svo gamall og auk þess úr góðu, umhverfisvænu efni,
staldrar ef til vill nýji eigandinn við, áður en hann hendir hlutnum
út í gám.

Umhverfissinnar ættu að taka vef eins og V3.is fagnandi, og nýta sér
hann til að halda til haga upplýsingum um viðhald eignar sinnar og
vinna þannig á umhverfisvænum nótum.

Fasteignaeigendur og húsfélög: Gjörið svo vel að skrá ykkur á www.V3.is
og nýta þetta tækifæri til að halda utan um viðhaldi eignarinnar
ykkar, húsfélagsins og fagmanninn sem vinnur fyrir ykkur. Og hve
ánægð þið eruð með vinnuna hans! Þið mælið með fagmanninum ykkar við
aðra notendur ef þið eruð ánægð með hann og gefið honum góða einkunn.
Þeir fagmenn sem fá góða einkunn koma upp í leit að fagmanni (finna
fagmann), sem allir notendur geta nýtt sér hvenær sem er.

Fagmenn: Gjörið svo vel að skrá ykkur og upplýsingar um þjónustu sem
þið bjóðið upp á. Allir sem eru að leita sér að fagmanni, geta leitað
í verkbókinni og sett sig í samband við ykkur. Notkun og skráning á
vefinn er án endurgjalds.

Athugið, að á vefnum V3.is er ekki gerður greinarmunur á orðunum
fagmaður og iðnaðarmaður, orðið fagmaður er notað sem samheiti yfir
iðnaðarmenn og aðra sérfræðinga á sviði viðhalds, byggingaframkvæmda,
nýbygginga o.s.frv.

Undanfarið hefur verið unnið að því að bæta útlitið á vef
viðhaldsbókar, www.V3.is. Markmiðið er að draga betur fram aðalatriði
vefsins, sem eru viðhaldsbók eignar (eiganda eignar), viðhaldsbók
húsfélags og verkbók fagmannsinn.
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages