Hjóladagur Skógræktarfélags Mosfellsbæjar

1 view
Skip to first unread message

Holmfridur Karlsdottir

unread,
Jun 20, 2013, 6:54:42 PM6/20/13
to sko...@googlegroups.com
Sæl
Skógræktarfélag Reykjavíkur og Skógræktarfélag Mosfellsbæjar standa fyrir fjölskylduhjólreiðaferð þann 22. Júní kl. 14:00.
Lagt verður af stað við hús Skógræktarfélags Reykjavíkur við Elliðavatn kl. 14:00 og hjólað að aðstöðu Skógræktarfélags Mosfellsbæjar í Hamrahlíð í Úlfarsfelli við Vesturlandsveg. 
Hjólað verður yfir Hólmsheiði á malarstígum, komið niður við Reynisvatn, gegnum Grafarholt, framhjá Bauhaus og að Hamrahlíð. Hægt að hjóla malbikuðum stíg alla leið ef fólk kýs það frekar.
Fyrir yngstu kynslóðina verður hægt að byrja við Bauhaus og hjóla nýja stíginn sem liggur þaðan að Hamrahlíð.
Gert er ráð fyrir að allir verði komnir í Hamrahlíðina klukkan rúmlega 15:30.
Boðið verður upp hressingu í Hamrahlíð að hjólreiðaferð lokinni.
Hægt verður að fá far til baka frá Hamrahlíð bæði fyrir fólk og hjól.
Vonumst til að sjá sem flesta.

Viðhengd er auglýsing sem þið megið endilega hengja upp á vinnustaðnum eða dreifa áfram.

Kveðja
Fyrir hönd Skógræktarfélags Mosfellsbæjar
Hólmfríður Karlsdóttir
Hjóladagur Skógræktarfélags MosfellsbæjarA4.pdf
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages