Nú fer að styttast í ársafmæli RPUG. Að því tilefni langaði mig að
leggja til afmælissamkomu. Fyrsti fundur okkar var haldinn 27. júní
2007 en þar sem 27. júní ber upp á föstudag þetta árið sting ég upp á
miðvikudeginum 25. júní.
Ég legg til:
* Miðvikudagurinn 25. júní 2008
* Um 17:00
* Matsalur CCP, Grandagarði 8 (4. hæð)
* 3 - 4 fyrirlestrar
* 20-25 mínútur hver fyrirlestur (með spurningum)
* Klukkan 18:45 hefst útsending fyrri undanúrslitaleiks EM í
fótbolta. Ef það er einhver stemning
fyrir því að panta pizzur og horfa saman á leikinn væri það alveg pæling.
Ef þið hafið aðrar tillögur eru þær velkomnar.
Nú óska ég eftir erindum. Allir eru hvattir til þess að rifja upp hvað
þeir hafa gert í Python síðustu mánuði og vita hvort þeir hafi ekki
lært eitthvað nýtt og sniðugt sem gaman væri að segja frá. Lista yfir
erindi fyrri samkoma má finna á http://rpug.net/trac/. Þeim sem hafa
áhuga á að flytja erindi en vita ekki um hvað þeir skyldu fjalla er
bent á Óskalista RPUG um umræðuefni:
http://rpug.net/trac/wiki/Samkomur/Oskalisti. Við óskalistann má
einnig bæta. Annars gildir bara að fjalla um það sem manni finnst
skemmtilegt og hefur áhuga á.
Þeir sem hyggjast mæta eru hvattir til þess að bæta sér við
mætingarlistann á samkonusíðunni (
http://rpug.net/trac/wiki/Samkomur/20080625 ). Það má ýmist gera með
því að skrá sig sem Wiki notanda og breyta síðunni eða senda mér
tölvupóst.
Með kveðju,
Björn Swift
kv. Stefán Freyr.
> --~--~---------~--~----~------------~-------~--~----~
> You received this message because you are subscribed to "Reykjavik Python
> User Group" group. To unsubscribe, send an email to
> rpug-uns...@googlegroups.com
> -~----------~----~----~----~------~----~------~--~---
En já, gott framtak!
- Kári Hreinsson
2008/6/13 Bjorn Swift <bjorn...@gmail.com>:
kv,
Arnar
2008/6/13 Kári Hreinsson <kar...@gmail.com>:
Kveðja,
Björn Swift
2008/6/13 Arnar Birgisson <arn...@gmail.com>: