Málþing um opinn aðgang 25. október í Háskólanum í Reykjavík

5 views
Skip to first unread message

Gudmundur A. Thorisson

unread,
Sep 16, 2013, 12:36:24 PM9/16/13
to oa-island-t...@googlegroups.com
Sæl öll.

Alþjóðlega Open Access vikan verður haldin hátíðleg 21. til 27. október næstkomandi. Í tilefni af þessu stöndum við í OA Ísland, í samstarfi við Rannís og Háskólann í Reykjavík og með stuðningi fleiri aðila, fyrir málþingi um opinn aðgang þann 25. október í fyrirlestrarsal HR frá kl. 11:15 til 16:30. Aðalfyrirlesari okkar verður Mikael Elbæk frá DTU í Danmörku.

Markmið málþingsins er að fræða almenning og fræðasamfélagið á Íslandi um opinn aðgang og hvetja til umræðu um þetta mikilvæga málefni. Dagskráin samanstendur af hefðbundnum erindum, syrpu af 5mín örerindum og þremur samhliða vinnustofum þar sem ákveðin áhersluatriði verða tekin sérstaklega fyrir.

Áhugasamir geta skráð sig til þáttöku á vefnum okkar þar sem finna má dagskrá og frekari upplýsingar:

http://opinnadgangur.is/vidburdir/oa-island-malthing-2013/

Aðgangur er ókeypis og opinn öllum. Boðið verður upp á léttan hádegisverð og kaffi & með því.


Við vonumst til að sjá sem flest ykkar í næsta mánuði!


Fyrir hönd skipulagsnefndar:

Sólveig Þorsteinsdóttir (Heilbrigðisvísindabókasafn Landspítala-Háskólasjúkrahúss)
Hrafn Malmquist (Landsbókasafn/Háskólabókasafn)
Áslaug Agnarsdóttir (Landsbókasafn/Háskólabókasafn)
Guðlaug Kristjánsdóttir (Rannís)
Guðmundur Þórisson (Reiknistofnun Háskóla Íslands / ORCID)
Ian Watson (Háskólinn á Bifröst/Bókasafn Dagsbrúnar)
Tryggvi Björgvinsson (FSFÍ - Félag um Stafrænt Frelsi á Íslandi)



--
Gudmundur A. Thorisson, PhD
Project manager, ORCID - http://orcid.org | ODIN project - http://odin-project.eu
Specialist, University of Iceland Computing Services - http://rhi.hi.is
Open Access Iceland - http://opinnadgangur.is
http://gthorisson.name | http://orcid.org/0000-0001-5635-1860 | http://twitter.com/gthorisson


Gudmundur A. Thorisson

unread,
Oct 9, 2013, 10:29:34 AM10/9/13
to oa-island-t...@googlegroups.com, oa-i...@googlegroups.com
Sæl öll. Ég minni á málþingið föstudaginn í þarnæstu viku. Endilega skráið ykkur sem fyrst ef þið ætlið að mæta, svo við vitum hvað margir koma og getum útvegað passlega mikið af veitingum. Skráning hér:

http://opinnadgangur.is/vidburdir/oa-island-malthing-2013/


Begin forwarded message:

Gudmundur A. Thorisson

unread,
Oct 23, 2013, 6:02:02 AM10/23/13
to oa-i...@googlegroups.com, oa-island-t...@googlegroups.com
Síðasta tækifæri að skrá sig á málþingið á föstudaginn. Lokað verður fyrir skráningu í kvöld:

http://opinnadgangur.is/vidburdir/oa-island-malthing-2013/


G
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages