Höfundarforlagið Nýhil hefur gefið út ljóðabókina Högg á vatni eftir Hermann Stefánsson, óþolsbók frá góðæristímanum. Bókin er væntanleg í bókabúðir á höfuðborgarsvæðinu. Hún er gefin út í 100 tölusettum og árituðum eintökum og verður ekki endurútgefin. Hægt að panta hana í gegnum netið á sérstöku tilboði, á skitnar 1500 krónur. Svona virkar þetta: þú sendir tölvupóst á netfangið hogga...@gmail.com og ritar í hann fullt nafn og heimimlisfang (ekki hér á fésbók). Síðan millifærirðu í netbanka á reikningsnúmerið sem þú færð uppgefið og bókin er send heim til þín um hæl. |