Sælinú.
Nýjasta hefti Tregawattanna er smátt og smátt að komast í farveg en þar er enn pláss fyrir eitthvað efni. Þemað er konur og svo vitnað sé í gamalt ákall:
Ljóðavefritið Tíu þúsund tregawött (www.tregawott.net) kallar eftir efni til birtingar í vefritinu. Efnið má vera í formi ljóðs, ljóðaþýðingar, greinar um ljóðlist, myndljóðs, upplesturs, hljóðaljóðs, ljóðmyndar, konkretljóðs, sögu um ljóðlist, ljóðasögu, söguljóðs eða hvers þess forms sem skáldinu þykir skemmtilegast og best að beygja innihald sitt undir.
Æskilegt er að efnið hafi hvurgi birst opinberlega en það er þó ekki skilyrði. Sérstaklega óska ég eftir einhverskonar ritdómum.
Ég vek athygli á tvennu: Annars vegar er slík umfjöllun undanþegin þemanu. Konur þurfa ekki nauðsynlega að koma við sögu í þeim eða vera höfundar, þótt slíkt sé vitanlega velkomið.
Hitt: Orðið ritdóm ber alls ekki að taka of hátíðlega, mér þætti sérlega vænt um að þeir væru með óhefðbundnu sniði. Þeir mega t.a.m. vera í formi myndljóðs sem væri andsvar við verki eða bók. Þeir mega vera almenn hugleiðing, bálkur eða ein lína, kannski SMS um ljóðabók. Rýni sem er unnin upp úr orðunum í hinni rýndu bók? Nafnlaus rýni? Stjörnugjöf? Exklúsív stjörnugjöf og engin orð?
Í öllu falli þætti mér afar vænt um að fá frá ykkur efni hið fyrsta, skáld og pælarar um veröld alla.
Bestu kveðjur,
Hildur.
--
______________
Hildur Lilliendahl
Vesturbrún 2
104 Reykjavík
vs. 411 4706
gsm. 869 1884