Blóm í byssukjafta græðginnar - Ný ljóðabók Bjarna Bernharðs

2 views
Skip to first unread message

Kristian Guttesen

unread,
Jul 3, 2009, 12:27:41 PM7/3/09
to ljod...@googlegroups.com
Sérðu eitthvað illa? Smelltu þá hér.

Ný ljóðabók eftir Bjarna Bernharð: Blóm í byssukjafta græðginnar
Blóm í byssukjafta græðginnar
Í hringrás
tómleika
flöktir ljósið
um verund

hverfull
sannleikur
spannar
sviðið

vegferð
í tímaleysi
markar
upphafið.

Í þessari bók má finna óræð, myndræn ljóð í knöppu formi, önnur opin og glaðvær, fáein hvassyrtari, en öll eru þau fáguð og bera jafnframt skýr einkenni höfundarins. Það vald sem Bjarni Bernharður hefur hér náð á markvissum, litríkum einfaldleika, skipar honum í röð merkari ljóðskálda samtímans.

Enginn skyldi reyna að útskýra galdur ljóðsins. En listin gerir okkur oft ljóst hið nýja og óvænta í því gamalkunna sem virtist útrætt og afgreitt – og að í hinu persónulega búa sammannleg verðmæti sem undirstrika hvað máli skiptir í lífinu – og hvers virði það er. Fátt er okkur mikilvægara.

Bókin fæst í bókaverslunum. Útgefandi er Ego útgáfan.

--

Útgefnar bækur höfundar:

Upp og ofan   1975
Hanafætur í regnboganum   1977
Blár pýramídi   1979
Ljóðför á hendur Grásteini   1979
Mauraborðið   1984
Rimma   1984
Stjörnunös   1986
Brjálaða plánetan   1988
Spor mín og vængir   2002
Náttglöpin   2003
Í sveigðu rými   2004
Ljósboginn   2005
Vélgölturinn   2006
Innviðir – Ljóð 1975-2006   2006
Blóm: The Shadowline – Klæðnaður fyrir miðnætti   2007
Kaleikur   2008
Blóm í byssukjafta græðginnar   2009

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages