[Tíu þúsund tregawött] Weekly Digest Email

0 views
Skip to first unread message

Ritstjórn Tíu þúsund tregawatta

unread,
Jun 8, 2009, 8:02:59 PM6/8/09
to tiuthusun...@gmail.com
Tíu þúsund tregawött - Nýjasta nýtt:


http://www.tregawott.net/tw/?p=205
Félag um Ljóðasetur Íslands í samstarfi við Kómedíuleikhúsið
frumsýnir ljóðaleikinn Þorpið í Patreksfjarðarkirkju á laugardag.
Þorpið er einhver þekktasta og markverðasta ljóðabók sem gefin hefur
verið út á Íslandi og hefur notið fádæma vinsælda allt frá því hún
kom fyrst út árið 1946. Frekari upplýsingar hér.


http://www.tregawott.net/tw/?p=207
Neyðarkall frá ritstjóra næsta tölublaðs Tregawattanna:

Sælinú.

Nýjasta hefti Tregawattanna er smátt og smátt að komast í farveg en þar
er enn pláss fyrir eitthvað efni. Þemað er konur og svo vitnað sé í
gamalt ákall:

Ljóðavefritið Tíu þúsund tregawött kallar eftir efni til birtingar í
vefritinu. Efnið má vera í formi ljóðs, ljóðaþýðingar, greinar um
ljóðlist, myndljóðs, [...]


http://www.tregawott.net/tw/?p=211
Jón Kalman Stefánsson hefur þýtt tvö ljóð eftir Charles Simic og birtast
þau á Bjartsvefnum.

Hægt er að skoða nýjustu færslur á
http://www.tregawott.net/tw

Þennan póst færðu vegna þess að þú skráðir þig á heimasíðunni.
Bestu kveðjur,

Ritstjórn Tíu þúsund tregawatta
tiuthusun...@gmail.com
www.tregawott.net

Ritstjórn Tíu þúsund tregawatta

unread,
Jun 15, 2009, 8:01:19 PM6/15/09
to tiuthusun...@gmail.com
Tíu þúsund tregawött - Nýjasta nýtt:


http://www.tregawott.net/tw/?p=212
Ljóðahaust: Mikið verður um dýrðir í ljóðlistinni síðla sumars og í
haust. Fyrst skal nefna að Bókmenntahátíð í Reykjavík 2009, sem haldin
verður í september, verður í sambandi við kanadísku
Griffin-ljóðlistarverðlaunin, en einn dagur í dagskrá hátíðarinnar
verður tileinkaður ljóðalestri og umfjöllun um ljóðlist. Verðlaunin hafa
verið veitt árlega frá árinu 2000 og meðal fyrri [...]


http://www.tregawott.net/tw/?p=216

Laugardaginn 20. júní verður ljóðadagskrá með rokkuðu ívafi í
Verksmiðjunni á Hjalteyri. Umsjónarmaður dagskrárinnar er skáldið og
rithöfundurinn Einar Már Guðmundsson en sérlegir gestir hans verða
söngvaskáldin Kristján Pétur Sigurðsson og Þórarinn Hjartarson.
Dagskráin hefst kl. 21:00 og er enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.
Frekari upplýsingar hér.

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages