Tregawött, 5ta tö lublað: www.mbfr.tregawott.net

2 views
Skip to first unread message

Tíu þúsund tregawött

unread,
Nov 9, 2009, 5:59:20 AM11/9/09
to Office 2004 Test Drive User
Nýhil og Tíu þúsund tregawött kynna – samanskroppin af skömm, en tilneydd,
kúguð, lömuð af ótta og í allan stað miður sín:

Bókverk? Ljóð? Vefur? Moggablogg? 5. tölublað Tíu þúsund tregawatta?
Readymade? Myndlist? Myndbandsljóð og ljóðamyndband?
Margmiðlunargagnkvæmisaðilavettvangur? Óforskömmuð auglýsing og staðgengill
fyrir lamað Morgunblað? Mbfr er allt þetta, allt annað og allt sem þú getur
látið þér detta í hug, allt sem aðrir geta látið sér detta í hug – til dæmis
kunningjar þínir, flóttamenn á vergangi, vörubílstjórar, rakarar, Bragi í
Bókavörðunni, Halldór Kiljan Laxness, Barack Obama, Sjálfstæðar konur og
Birgitta Haukdal (hvar er hún nú?). Og allir koma við sögu – ekkert er mbfr
svo óviðkomandi að mbfr dýfi sér ekki óhrætt (kjarkað! óttalaust!
sigurboginn! grillhúsgögn! húrra!) ofan í sorapollinn og fletti af honum
gubbhulunni! Frjálst og óháð! Þorir þegar aðrir deyja!

Mbfr er listaverk (ógleymanlegt! þjóðardjásn!) eftir Eirík Örn Norðdahl og
Jón Örn Loðmfjörð (þeir eru æði, fáránlega hæfileikaríkir!). Það er ókeypis
inn (kostar ekki neitt!) og til athugunar, skoðunar, umhugsunar á
mbfr.tregawott.net. Allir eru velkomnir! Engin manneskja er ólögleg!

Höfundar vilja þakka Stefáni Friðriki Stefánssyni, Davíð Oddssyni og
vefururum og útlitshönnuðum mbl.is fyrir auðsýndan stuðning (ha? auðsýndan
stuðning), sem og auglýsendum (ha? auglýsendum?).

www.tregawott.net


Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages