Sæl og blessuð.

2 views
Skip to first unread message

ásthildur Þórðardóttir

unread,
Mar 19, 2013, 5:44:48 AM3/19/13
to kjarni-dogunar
Ég hef verið að bíða eftir því að geta lesið endanlegar útfærslur á samþykktum Dögunar á landsfundinum, einnig þær ályktanir sem samþykktar voru og kosningu til hinna ýmsu embætta.  Ég vona að þessu hafi verið nú þegar komið áleiðis til fjölmiðla, því við erum að tapa tíma, allt þetta mun drukkna í páskum ef við verðum ekki búin að koma þessu áfram núna strax. 
Ég vil líka gjarnan setja þetta inn á bloggið mitt, en finn ekki plöggin sem nú eru orðin opinber stefna Dögunar.  Ályktanirnar þurftu líka að komast strax í umfjöllun fjölmiðla.
Með kveðju Ásthildur.

Andrea Ólafs

unread,
Mar 19, 2013, 6:06:18 AM3/19/13
to ásthildur Þórðardóttir, kri...@xdogun.is, kjarni-...@googlegroups.com
Sæl Ásthildur
Ég reikna með að Kristín ritstjórinn okkar sé að vinna í þessu á fullu ... já rétt er að gott hefði verið að senda út nokkra útdrætti úr stefnumörkun frá landsfundinum og sjá hvort við fengjum birtingu á því. 

Vonandi að eitthvað fari út frá okkur í dag.... og að efnið komi breytt inn á heimasíðuna okkar hið allra fyrsta. 

Ég er á leið upp í kosningamiðstöð og skal hjálpa til ef ég get :) 

Kv
Andrea


--
You received this message because you are subscribed to the Google Groups "Kjarni Dögunar" group.
To unsubscribe from this group and stop receiving emails from it, send an email to kjarni-doguna...@googlegroups.com.
For more options, visit https://groups.google.com/groups/opt_out.
 
 



--

Kveðja,

Andrea J. Ólafs., 

simi / tel: +(354) 698 8101

Kristín Pálsdóttir

unread,
Mar 19, 2013, 6:13:05 AM3/19/13
to kjarni-...@googlegroups.com

Sæl.

Ég minni á að það eru allir á kjarnalistanum svo að það er óþarfi að setja mig eða aðra á honum í cc. Nóg er póstflóðið samt.

 

Ef einhver vill gera gagn þá á eftir að slá inn handskrifaðan hluta fundargerðar og ég væri þakklát ef einhver getur temið það að sér. Ég myndi skanna þetta inn og senda á viðkomandi.

 

Svo væri líka gott ef fólk vill hefur tíma til að skrifa greinar eða fréttir af fundinum og senda á mig. Það væri mikið gagn í því.

 

Kveðja,

 

Kristín

ásthildur Þórðardóttir

unread,
Mar 19, 2013, 8:10:44 AM3/19/13
to Kristín Pálsdóttir, kjarni-...@googlegroups.com
Ég ætlaði ekki að vera leiðinleg eða neitt þannig.  Ég geri mér fulla grein fyrir allri  þeirri vinnu sem verið er að vinna.  Vildi bara vekja athygli á því að það þarf að nýta kjölsogið af fundinum til að rödd okkar heyrist.  Ég þakka fyrir ályktanirnar ég mun setja þær inn til að byrja með og svo mun ég blogga um fundinn eftir því sem við fáum meira í hendurnar.  Ég hef fulla trú á okkar fólki öllu saman.  Svo það komi skýrt fram. 
Með baráttukveðjum Ásthildur.

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages