Við áttum fínan dag í Nettó Suðurnesjum Ragnhildur, ég, Andrea ásamt tveim öðrum konum sem fóru í bónus. Við erum ekki komin alveg með endanlegar tölur þaðan en ef við gefum okkur að þær hafi náð tveim blöðum þá eru við háfnuð með meðmælendur í Suður, yfir 150 nöfn.
Hvað gerðum við?
Bara bjóða kurteisislega góðan daginn, brosa og spyrja fólk hvort ég meigi trufla það augnablik, svo frasinn, " ég er að safna undirskriftum fyrir Dögun svo við getum fengið að bjóða fram í þessu kjördæmi" ca. svona " má ég byðja þig um að skrifa undir?" og lang flestir samþykkja fljótlega ef fólk hikar eitthvað þá nefnir maður að það sé engin skuldbinding með atkvæðið. Bara grípa fólkið á ferðinni.
Ég spurði nánast alla og einn eða tveir voru búnir að skrifa undir hjá öðrum, sem sagt, ekkert mál og lítil sem engin truflun af hinum framboðunum.
Andrea var svo ákveðin að hún var hætt að spyrja hvort hún mætti trufla fólk og spurði bara beint um undirskriftina en þetta kemur fljótt og þið finnið ykkur. Sumir fara aðeins undan í flæmingi og þá getur maður bara gengið aðeins á fólk og þá gengur þetta hjá flestum. Einstaka sagðist vera flokksbundin en ég sagði bara að það væri ekkert mál og þá skrifaði fólk bara undir. Sumir sem sögðust vera flokksbundnir fullyrtu að þeir ætluðu ekki að kjósa sinn flokk.
Aðal málið er bara að láta fók vita af því að skrifa bara undir hjá einum flokki og svo er þetta frábært tækifæri að afhenda fólki bleðilinn og benda fólki á heimasíðuna
xt.is, spyrja hvort fólk sé búið að skoða málin eitthvað og rétta bæklingin. Sumir sem ekki skrifuðu undir tóku við bæklingnum og ætluðu að skoða málið.
Í stuttu máli þá var þetta ekkert mál, fara 2-3 saman og bara gera þetta. Þetta gekk mjög vel og það var gaman að heyra hvað fólk var ákveðið í að það þyrfti að skipta út á alþingi. Um að gera að grípa tímann eftir vinnu 4-6 í stórmarkaðina. Við förum létt með þetta gott fólk, bara grúppa sig saman og skella sér af stað. Ef allir taka eina til tvær ferðir, 20-30 nöfn á mann í hvert skipti þá náum við þessu á viku.
Baráttukveðjur
Þorvaldur Geirsson