-----Original Message-----
From: Kjarni [mailto:
kjarni-...@heimilin.is] On Behalf Of Guðmundur
Ásgeirsson
Sent: 2. apríl 2013 22:42
To: undisclosed-recipients:
Subject: [Kjarni HH] SFF, ASÍ og ÍLS boða til ráðstefnu um framtíð
fasteignalána á Íslandi
Samtök fjármálafyrirtækja standa ásamt ASÍ og Íbúðalánasjóði fyrir
ráðstefnu um framtíð húsnæðislána á Íslandi 4. apríl næstkomandi á Hilton
Nordica. Á ráðstefnunni munu sérfræðingar úr ólíkum áttum varpa fram sýn
sinni á stöðu mála á íslenska fasteignalánamarkaðnum og hvaða leiðir eru
færar til úrbóta.
Karsten Beltoft, framkvæmdastjóri Realkreditforeningen sem eru samtök
fasteignaveðlánafyrirtækja á Danmörku, mun halda erindi um danska
húsnæðislánakerfið og bera það saman við fyrirkomulagið á hinum
Norðurlöndunum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, mun fara yfir áherslur
samtakana í fasteignalánum og Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúðalánasjóðs
mun reifa sjónarhorn ÍLS. Ásgeir Jónsson, hagfræðingur, mun kynna
niðurstöður skýrslu sem hann vann ásamt Valdimar Ármann, Sigurði Jóhanssyni
auk Brice Benaben og Stefaníu Perucci fyrir SFF um verðtryggingu, vexti og
verðbólgu á Íslandi. Þá mun Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur SFF, fara
yfir hvaða leiðir eru færar til umbóta á íslenska fasteignalánamarkaðnum.
Í lok ráðstefnunar verða pallborðsumræður með formönnum þeirra
stjórnmálaflokka sem eiga sæti á Alþingi.
Ráðstefnan hefst 8:30 og stendur til 11:15. Dagskrá hennar má nálgast
hér<
http://www.asi.is/Portaldata/1/Resources/auglysingar/radstefna_um_husnae
dislan_4.4_13.pdf>
.
Allir eru velkomnir og fer skráning þátttöku fram
hér<
http://sff.is/dagatal/skraning-radstefnu-um-framtid-husnaedislana-island
i>
.
Sjá auglýsingu:
http://www.sff.is/sites/default/files/sff_2x150.pdf
_______________________________________________
Kjarni mailing list
Kja...@heimilin.is
http://vps.vefhysing.com/mailman/listinfo/kjarni_heimilin.is