SV: Ályktun landsfundar Dögunar - afnám, leiðrétting og afturvirkt afnám - og upptaka

1 view
Skip to first unread message

Gísli Tryggvason

unread,
Mar 17, 2013, 7:54:31 PM3/17/13
to Andrea Ólafs, Þór Saari, Kristín Pálsdóttir, kjarni-...@googlegroups.com
Svo má taka fram að sjálfur meina ég afturvirkt afnám ekki sem það, sem enn umdeildara væri og hæpnara að mínu mati:

4. Upptaka á (ófyrndum) áföllnum verðbótum sem þegar hafa verið reiknaðar (sbr. hins vegar 2. tl. um leiðréttingu vegna forsendubrests og fleiri röksemda sem við þekkjum); slíka upptöku er ég ekki að leggja til og teldi hana hæpna.

Kær kveðja,

Gísli Tryggvason.

Núpalind 4,
IS-201 Kópavogi.
Vs. 510 11 21.
Hs. 564 63 14.
GSM 897 33 14.
________________________________________
Frá: kjarni-...@googlegroups.com [kjarni-...@googlegroups.com] fyrir hönd Gísli Tryggvason [gis...@ru.is]
Sent: 17. mars 2013 23:46
Til: Andrea Ólafs; Þór Saari
Afrit: Kristín Pálsdóttir; kjarni-...@googlegroups.com
Efni: SV: Ályktun landsfundar Dögunar - afnám, leiðrétting og afturvirkt afnám

Sæl og takk fyrir góðan fund.

Reyndar setti ég þetta inn í ræðudrögin, hélt ég, á föstudag - eftir að þingflokksformaður Framsóknarflokksins áréttaði aðspurður á þingi að skoða yrði (en ekki lofa) afturvirka afnámið eins og ég nefndi við Margrétu - en finn það ekki í ræðunni; kannski hefur það dottið út úr lokaritstjórn þegar ég skrapp heim í fataskipti.

Auðvitað hefði verið best að svo mikilvægt atriði í grundvallarstefnumáli okkar og umdeildu máli hefði verið rætt í málefnanefnd fyrir landsfund, þar sem ég var ekki, eða í málefnanefnd um málið á landsfundi þar sem ég komst ekki. Gott er að ræða þetta frekar í málefnahóp hvernig útfært skuli. Svona hef ég samt alltaf skilið stefnu okkar þannig:

Um er að ræða þrjú álitaefni og deilumál:

1. Framvirkt afnám (bann) verðtryggingar; engir nýir verðtryggðir samningar verði gerðir. Það er líklega minnst umdeilt og flestir fylgjandi því.

2. Afturvirk einskiptis leiðrétting/niðurfærsla, sbr. umræðu um hvort, hve mikið og hvernig allar götur frá 2008. Þetta er umdeildara en 1. tl. að mínu mati.

3. Afturvirkt afnám (bann) við gildandi lánasamningum með verðtryggingu. Slíkt myndu margir ekki styðja nema fyrir lægi dómur um að þeir stæðust nú ekki eða hefðu aldrei staðist, sbr. neytendareglur Evrópuréttar, þ.m.t. ógildingarreglu 36. gr. samningalaga um ósanngirni og heimild til breytinga vegna atvika sem síðar koma til. Ég tel hins vegar að við eigum að "markera" okkur sem róttækasta aflið í þessu máli - ekki síst eftir að XB og HG hafa náð að fanga eitt aðalmál okkar. Sumir munu kalla það yfirboð og lýðskrum að vanda en ég tel það auma pólitík að treysta bara á dómstóla og ESB/EES í þessu efni eins og í gengismálunum. Auðvitað er umdeilt hvort það stenst lög og eignarrétt en ég vil halda því fram - m.a. með vísan til þess að reglum um verðtryggingu hefur verið breytt, verðtrygging launa var afnumin 1983 (og vextir voru gefnir frjálsir 1985), verðtryggingin er ósjálfbær vítisvél og hrikalega ósanngjörn í sjálfu sér. M.ö.o. er ég tilbúinn að taka rökræðuna og áhættuna - enda veitir okkur ekki af sérstöðu.

Skilja má formann Framsóknar svo að hann styðji afturvirkt afnám - með rétti til breytinga (sem væntanlega verður ekki valkvæður fyrir lánveitendur, þannig að hann verður þvingaður):

"Afnámið verður að framkvæma þannig að fólk með verðtryggð lán geti skipt yfir í óverðtryggð, lántakendum bjóðist stöðugir vextir, áhætta skiptist milli lánveitenda og lántaka þannig að áættunni sé skipt eðlilega."

(http://sigmundurdavid.is/afnam-og-leidretting-thetta-er-einfalt/)

Kær kveðja,

Gísli Tryggvason.

Núpalind 4,
IS-201 Kópavogi.
Vs. 510 11 21.
Hs. 564 63 14.
GSM 897 33 14.
________________________________________
Frá: kjarni-...@googlegroups.com [kjarni-...@googlegroups.com] fyrir hönd Andrea Ólafs [andre...@gmail.com]
Sent: 17. mars 2013 22:37
Til: Þór Saari
Afrit: Kristín Pálsdóttir; kjarni-...@googlegroups.com
Efni: Re: Ályktun landsfundar Dögunar

Tek undir með Þór ... þetta orð afturvirkt var ekki í ályktuninni þegar ég fór af fundi.
Hvernig rökstyðjið þið það að setja þetta orð inn?
Við ætlum ekki að afnema hana afturvirkt nema ef dómar falla á þann veg. ... annars eru við að tala um leiðréttingar sem myndu þó ekki teljast afturvirkt afnám verðtryggingar.

Kv
A

Þann 17. mars 2013 22:29, skrifaði Þór Saari <sa...@centrum.is<mailto:sa...@centrum.is>>:
Sæl öll og takk fyrir frábæra vinnu.
Vill benda á að í hlutanum um heimilin er þessa málsgrein að finna:
„Á okkur brennur hagur heimilanna í landinu. Afturvirkt afnám verðtryggingar er grundvallaratriði í okkar stefnu. Frá því markmiði munum við hvergi víkja. Eins er ljóst að hrunið verður ekki gert upp fyrr en almenn leiðrétting húsnæðislána hefur farið fram. Þar krefjumst við réttlætis. Leiðréttingar lána heimilanna eiga hvorki að falla á ríkissjóð né lántakendur sjálfa. Þetta má gera með því að endurheimta ríkisaðstoð við bankana og skattleggja hagnað þeirra undanfarin ár.“
Þetta er jarðsprengjusvæði sem verður að fara varlega í að ræða og þarf að útfæra vel. Við ætlum að leiðrétta skuldir heimilanna afturvirkt og afnema verðtryggingu framvirkt ef ég skil málið rétt. Það þarf að setjast niður og skilgreina vel hvað við meinum með þessu og hvernig útfærslan verður því hún getur verið margvísileg og
það skiptir máli að talað sé einum rómi.

Með baráttukveðju,
Þór

From: kjarni-...@googlegroups.com<mailto:kjarni-...@googlegroups.com> [mailto:kjarni-...@googlegroups.com<mailto:kjarni-...@googlegroups.com>] On Behalf Of Kristín Pálsdóttir
Sent: 17. mars 2013 22:09
To: kjarni-...@googlegroups.com<mailto:kjarni-...@googlegroups.com>
Subject: Ályktun landsfundar Dögunar

Þessi fréttatilkynning er farin út:

Landsfundi Dögunar lauk í dag um kl. 17.00 í dag sunnudag 17. mars.

Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun um með hverjum Dögun vill starfa eftir kosningar:

„Dögun er samvinnumiðað umbótaafl sem sett hefur þrjú mál í forgang:

a) aðgerðir í efnahagsmálum með sérstaka áherslu á hagsmuni heimilanna; afnám verðtryggingar, almenna leiðréttingu húsnæðislána og lögfestingu sómasamlegra framfærsluviðmiða

b) lýðræðisumbætur og nýja stjórnarskrá á grundvelli frumvarps stjórnlagaráðs

c) að hámarka arð þjóðarinnar af sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda hennar og uppstokkun á stjórn fiskveiða

Dögun lýsir yfir áhuga á að starfa með öðrum framboðum að ofangreindum málefnum. Í því sambandi horfum við fyrst til nýrra framboða áður en við lítum til þeirra gömlu. Dögun hefur verið og mun áfram vera jákvæð gagnvart kosninga- og/eða málefnabandalagi við önnur stjórnmálaöfl.“
Einnig var stjórnmálaályktun Dögunar samþykkt í dag og fylgir hún með í viðhengi en er einnig á heimasíðu: http://xdogun.is/vid-setjum-heimilin-i-forgang/.

Í dag var einnig kosið í nýtt framkvæmdaráð og þeir sem skipa nýtt ráð eru: Álfheiður Eymarsdóttir, Benedikt Sigurðarson, Helga Þórðardóttir, Baldvin Björgvinsson, Ása Lind Finnbogadóttir og Erling Ingvason.


Kveðja,

Kristín Pálsdóttir
Ritstjóri Dögunar
kri...@xdogun.is<mailto:kri...@xdogun.is>
GSM 893 9327

Dögun samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði
www.xdogun.is<http://www.xdogun.is/> - www.xt.is<http://www.xt.is/>

--
You received this message because you are subscribed to the Google Groups "Kjarni Dögunar" group.
To unsubscribe from this group and stop receiving emails from it, send an email to kjarni-doguna...@googlegroups.com<mailto:kjarni-doguna...@googlegroups.com>.
For more options, visit https://groups.google.com/groups/opt_out.



--
You received this message because you are subscribed to the Google Groups "Kjarni Dögunar" group.
To unsubscribe from this group and stop receiving emails from it, send an email to kjarni-doguna...@googlegroups.com<mailto:kjarni-dogunar%2Bunsu...@googlegroups.com>.
For more options, visit https://groups.google.com/groups/opt_out.





--

Kveðja,

Andrea J. Ólafs.,

simi / tel: +(354) 698 8101

--
You received this message because you are subscribed to the Google Groups "Kjarni Dögunar" group.
To unsubscribe from this group and stop receiving emails from it, send an email to kjarni-doguna...@googlegroups.com.
For more options, visit https://groups.google.com/groups/opt_out.


--
You received this message because you are subscribed to the Google Groups "Kjarni Dögunar" group.
To unsubscribe from this group and stop receiving emails from it, send an email to kjarni-doguna...@googlegroups.com.
For more options, visit https://groups.google.com/groups/opt_out.



Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages