Ályktun landsfundar Dögunar

2 views
Skip to first unread message

Kristín Pálsdóttir

unread,
Mar 17, 2013, 6:08:54 PM3/17/13
to kjarni-...@googlegroups.com

Þessi fréttatilkynning er farin út:

Landsfundi Dögunar lauk í dag um kl. 17.00 í dag sunnudag 17. mars.

Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun um með hverjum Dögun vill starfa eftir kosningar:

„Dögun er samvinnumiðað umbótaafl sem sett hefur þrjú mál í forgang:

a) aðgerðir í efnahagsmálum með sérstaka áherslu á hagsmuni heimilanna; afnám verðtryggingar, almenna leiðréttingu húsnæðislána og lögfestingu sómasamlegra framfærsluviðmiða

b)  lýðræðisumbætur og nýja stjórnarskrá á grundvelli frumvarps stjórnlagaráðs

c) að hámarka arð þjóðarinnar af sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda hennar og uppstokkun á stjórn fiskveiða

Dögun lýsir yfir áhuga á að starfa með öðrum framboðum að ofangreindum málefnum. Í því sambandi horfum við fyrst til nýrra framboða áður en við lítum til þeirra gömlu. Dögun hefur verið og mun áfram vera jákvæð gagnvart kosninga- og/eða málefnabandalagi við önnur stjórnmálaöfl.“

Einnig var stjórnmálaályktun Dögunar samþykkt í dag og fylgir hún með í viðhengi en er einnig á heimasíðu: http://xdogun.is/vid-setjum-heimilin-i-forgang/.  

 

Í dag var einnig kosið í nýtt framkvæmdaráð og þeir sem skipa nýtt ráð eru: Álfheiður Eymarsdóttir, Benedikt Sigurðarson, Helga Þórðardóttir, Baldvin Björgvinsson, Ása Lind Finnbogadóttir og Erling Ingvason.

 

 

Kveðja,

 

Kristín Pálsdóttir

Ritstjóri Dögunar

kri...@xdogun.is

GSM 893 9327

 

Dögun samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði

www.xdogun.is - www.xt.is

 

Við setjum heimilin í forgang_Stjórnmálaályktun Dögunar á landsfundi 2013_Endanleg.docx

Helga Þórðardóttir

unread,
Mar 17, 2013, 6:14:12 PM3/17/13
to Kristín Pálsdóttir, kjarni-...@googlegroups.com
Frábært takk fyrir þetta Kristín.

kv,
Helga

--
You received this message because you are subscribed to the Google Groups "Kjarni Dögunar" group.
To unsubscribe from this group and stop receiving emails from it, send an email to kjarni-doguna...@googlegroups.com.
For more options, visit https://groups.google.com/groups/opt_out.
 
 



--
Helga Þórðardóttir
Seiðakvísl 7
110 Reykjavík
S: 8642987

Þór Saari

unread,
Mar 17, 2013, 6:29:20 PM3/17/13
to Kristín Pálsdóttir, kjarni-...@googlegroups.com

Sæl öll og takk fyrir frábæra vinnu.

Vill benda á að í hlutanum um heimilin er þessa málsgrein að finna:

„Á okkur brennur hagur heimilanna í landinu. Afturvirkt afnám verðtryggingar er grundvallaratriði í okkar stefnu. Frá því markmiði munum við hvergi víkja. Eins er ljóst að hrunið verður ekki gert upp fyrr en almenn leiðrétting húsnæðislána hefur farið fram. Þar krefjumst við réttlætis. Leiðréttingar lána heimilanna eiga hvorki að falla á ríkissjóð né lántakendur sjálfa. Þetta má gera með því að endurheimta ríkisaðstoð við bankana og skattleggja hagnað þeirra undanfarin ár.“

Þetta er jarðsprengjusvæði sem verður að fara varlega í að ræða og þarf að útfæra vel. Við ætlum að leiðrétta skuldir heimilanna afturvirkt og afnema verðtryggingu   framvirkt ef ég skil málið rétt. Það þarf að setjast niður og skilgreina vel hvað við meinum með þessu og hvernig útfærslan verður því hún getur verið margvísileg og

það skiptir máli að talað sé einum rómi.

 

Með baráttukveðju,

Þór

--

Andrea Ólafs

unread,
Mar 17, 2013, 6:37:25 PM3/17/13
to Þór Saari, Kristín Pálsdóttir, kjarni-...@googlegroups.com
Tek undir með Þór ... þetta orð afturvirkt var ekki í ályktuninni þegar ég fór af fundi. 
Hvernig rökstyðjið þið það að setja þetta orð inn? 
Við ætlum ekki að afnema hana afturvirkt nema ef dómar falla á þann veg. ... annars eru við að tala um leiðréttingar sem myndu þó ekki teljast afturvirkt afnám verðtryggingar. 

Kv
A
--

Kveðja,

Andrea J. Ólafs., 

simi / tel: +(354) 698 8101

Helga Þórðardóttir

unread,
Mar 17, 2013, 8:30:34 PM3/17/13
to Andrea Ólafs, Þór Saari, Kristín Pálsdóttir, kjarni-...@googlegroups.com
Ég spurði Gísla einmitt um þetta orðalag í dag því það setti að mér efa. Hann getur kannski rifjað upp hverju hann svaraði. 

kv,
Helga

Ólöf Guðný Valdimarsdóttir

unread,
Mar 18, 2013, 2:30:29 AM3/18/13
to Helga Þórðardóttir, Þór Saari, Kristín Pálsdóttir, kjarni-...@googlegroups.com, Andrea Ólafs
Tek undir með Þór Saari að þetta orðalag gæti orðið okkur erfitt en það kom inn á lokasprettinum og olli mér hugarangri.
Ég yrði fegin ef það færi út.
B.kv.
Ólöf.

----- Upprunaleg skilaboð -----
Frá: "Helga Þórðardóttir" <hel...@hive.is>
Til: "Andrea Ólafs" <andre...@gmail.com>
Cc: "Þór Saari" <sa...@centrum.is>, "Kristín Pálsdóttir" <kri...@xdogun.is>, kjarni-...@googlegroups.com
Sent: Mánudagur, 18. Mars, 2013 00:30:34
Efni: Re: Ályktun landsfundar Dögunar
Kveðja ,

Andrea J. Ólafs.,

simi / tel: +(354) 698 8101



--
You received this message because you are subscribed to the Google Groups "Kjarni Dögunar" group.
To unsubscribe from this group and stop receiving emails from it, send an email to kjarni-doguna...@googlegroups.com .
For more options, visit https://groups.google.com/groups/opt_out .






--
Helga Þórðardóttir
Seiðakvísl 7
110 Reykjavík
S: 8642987

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages