Fyrirlestur í dag og EGMO

1 view
Skip to first unread message

Íslenska stærðfræðafélagið

unread,
Apr 16, 2026, 4:14:46 AMApr 16
to islenskastaerdfraedafelagid
Kæru félagsmenn, 

Við viljum minna á fyrirlesturinn í dag, 16. apríl, en þá mun Sigurður Freyr Hafstein, prófessor við Háskóla Íslands, halda fyrirlestur um hlutafleiðujöfnu Zubov fyrir hreyfikerfi. Fyrirlesturinn hefst 17:00 í stofu V-157, VR-II, Háskóla Íslands. Eins og venja er mun vera heitt á könnunni frá 16:30.

Titill:  Hlutafleiðujafna Zubov fyrir hreyfikerfi
Ágrip Við fjöllum um hreyfikerfi lýst með afleiðujöfnum og hina merkilegu hlutafleiðujöfnu Zubov, nefnda eftir Sovét-Rússneska stærðfræðingnum Vladimir Ivanovich Zubov, sem einkennir aðdáttarsvæði aðfellustöðugra jafnvægispunkta.  

Einnig viljum við minnast á að síðustu helgi tóku fjórar stúlkur þátt á EGMO, European Girls' Mathematical Olympiad, fyrir hönd Íslands og er þetta í fyrsta skipti sem Ísland tekur í þeirri keppni. Þeim gekk vel og öðluðust dýrmæta reynslu sem vonandi nýtist þeim í frekari keppnum í framtíðinni. Liðið samanstóð af Mary Lilja Ingimundarson, Snædísi Hönnu Jensdóttur, Snædísi Jökulsdóttur og Nicole Jónu Jóhannsdóttur. Með þeim í för voru Nanna Kristjánsdóttir og Álfheiður
Edda Sigurðardóttir. Screenshot_20260414_224823_Instagram~2.jpg

Kveðja,
stjórnin

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages