Aðalfundur 2024

6 views
Skip to first unread message

Íslenska stærðfræðafélagið

unread,
Jan 23, 2024, 11:46:27 AMJan 23
to islenskastaerdfraedafelagid
Kæru félagar.

Aðalfundur Íslenska stærðfræðafélagsins verður haldinn þriðjudaginn 30. janúar klukkan 16:00 í VR-II við Hjarðarhaga

Gott væri ef framboð til stjórnar* og tillögur um önnur mál myndu berast okkur í tölvupósti í aðdraganda fundar.

Dagskrá fundarins verður sem hér segir:

1. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
2. Skýrsla stjórnar flutt.
3. Samstarfsverkefni félagsins á erlendum vettvangi.
4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
5. Umsóknir um félagsaðild bornar upp.
6. Kosning stjórnarmanna.
7. Kosning skoðunarmanns reikninga.
8. Ákvörðun árgjalds.
9. Önnur mál.

*Helstu hlutverk stjórnar felast í samskiptum við regnhlífarsamtök og fagfélög erlendis, skipulagi funda og málfunda þegar við á, skipulagi ráðstefnunnar Stærðfræði á Íslandi sem haldin er annað hvert ár að jafnaði, utanumhald með bókarverðlaunum til nýstúdenta, upplýsingagjöf til félaga um viðburði tengda stærðfræði og stærðfræðimenntun, ofl.

Við vonumst til að sjá sem flesta félaga á fundinum.
Bestu kveðjur frá stjórn félagsins.

Íslenska stærðfræðafélagið

unread,
Jan 30, 2024, 8:32:14 AMJan 30
to islenskastaerdfraedafelagid

Kæru félagar.

Við minnum á að aðalfundur Íslenska stærðfræðafélagsins verður haldinn í dag, þriðjudaginn 30. janúar klukkan 16:00 í stofu 155 í VR-II við Hjarðarhaga
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages