Bókagjöf Hermanns Kjartanssonar stærðfræðings - Sýning í Þjóðarbókhlöðu 08.09.2023 - 29.10.2023

3 views
Skip to first unread message

Íslenska stærðfræðafélagið

unread,
Oct 18, 2023, 6:23:23 AM10/18/23
to islenskastaerdfraedafelagid
Komið sæl,
Ég var beðinn um að áframsenda þetta skeyti á póstlista Íslenska stærðfræðafélagsins.
Kveðja,
Sigurður Örn

Ágætu félagar Íslenska stærðfræðafélagsins.
Hermann Kjartansson stærðfræðingur hefur gefið Landsbóka­safni Íslands - Háskólabókasafni höfðinglega gjöf bóka um stærðfræði auk nokkurra bóka um skyld efni, stærðfræðilega eðlisfræði, stjarn­eðlisfræði og tölvunarfræði. Allar bækurnar í gjöfinni, um það bil 100 talsins, eru nýlegar og vel með farnar. Bróðurparturinn er ætlaður nemendum í framhaldsnámi og öðrum sem stunda rannsóknir í stærðfræði og skyldum fögum. Bókum sem ætlaðar eru nemendum í grunnnámi í stærðfræði verður stillt upp í stærðfræðihillum safnsins, en kennslubókum fyrir framhaldsnema og rannsóknaritum verður stillt upp í safndeildinni í Tæknigarði.  Hluti bókanna er nú til sýnis á 2. hæð Þjóðarbókhlöðunnar.
Bestu kveðjur,
Ragnar Sigurðsson. 
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages