Jólafundur Íslenska Stærðfræðafélagsins

7 views
Skip to first unread message

Íslenska stærðfræðafélagið

unread,
Dec 26, 2021, 1:43:12 PM12/26/21
to islenskastaerdfraedafelagid
Kæru félagar,

Miðvikudaginn 29. desember mun Elvar Wang Atlason halda fyrirlestur á jólafundi stærðfræðafélagsins.

Elvar er þriðja árs nemi í stærðfræði við Háskólann í Cambridge. Samhliða námi safnar hann rúmfræðilegum staðreyndum, og hefur lofað að deila nokkrum þeirra með okkur.

Titill: Ljósmynstur í bollum
Ágrip: Flest höfum við séð hjartalaga ljósrákir í botni bolla. Til að útskýra þetta fyrirbæri ræðum við um hjúpferla, endurskin og hjólferla. Við vörpum ljósi á stærðfræðina í hversdagsleikanum, og í leiðinni kynnumst við sniðugum aðferðum til að brjóta saman pappír. Þetta eru tilvalin umræðuefni í áramótaveisluna, svo það er um að gera að mæta.

Því miður gefst okkur ekki færi á að bjóða gestum á staðinn en fyrirlesturinn mun fara fram í streymi á Zoom á eftirfarandi hlekk:

Meeting ID: 681 9430 5657

Með ósk um gleðileg jól,
Sigurður Örn Stefánsson

Íslenska stærðfræðafélagið

unread,
Dec 26, 2021, 1:48:17 PM12/26/21
to islenskastaerdfraedafelagid
Komið sæl aftur,
Fyrirlesturinn hefst kl 17. þann 29. desember á eftirfarandi hlekk:

Meeting ID: 681 9430 5657
Kveðja,
Sigurður Örn Stefánsson

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages