Ágæta félagsfólk,
Í jólafyrirlestrinum í ár mun Ragnar Sigurðsson, prófessor í stærðfræði við Háskóla Íslands, halda minningarfyrirlestur um Sigurð Helgason sem lést 3. desember síðastliðinn. Boðið verður upp á kaffi og súkkulaði fyrir erindið. Fyrirlesturinn verður einnig aðgengilegur í streymi.
Með kveðju,
Stjórnin
Staður: Veröld - hús Vigdísar, fyrirlestrasalur 023.
Dagsetning: 28. desember.
Kaffi og súkkulaði: 15.30 - 16.00.
Fyrirlestur: 16.00 - 17.00.