Kæru félagsmenn,
Fimmtudaginn 16. apríl mun Sigurður Freyr Hafstein, prófessor við Háskóla Íslands, halda fyrirlestur um hlutafleiðujöfnu Zubov fyrir hreyfikerfi. Fyrirlesturinn hefst 17:00 í stofu V-157, VR-II, Háskóla Íslands. Eins og venja er mun vera heitt á könnunni frá 16:30.
Titill: Hlutafleiðujafna Zubov fyrir hreyfikerfi
Ágrip Við fjöllum um hreyfikerfi lýst með afleiðujöfnum og hina merkilegu hlutafleiðujöfnu Zubov, nefnda eftir Sovét-Rússneska stærðfræðingnum Vladimir Ivanovich Zubov, sem einkennir aðdáttarsvæði aðfellustöðugra jafnvægispunkta.
Páskakveðja,
stjórnin