Páskafyrirlestur á mánudag

1 view
Skip to first unread message

Íslenska stærðfræðafélagið

unread,
Apr 8, 2022, 9:17:21 AM4/8/22
to islenskastaerdfraedafelagid, sigurd...@gmail.com
Komið sæl,

Sigurður Jens Albertsson heldur fyrirlesturinn Línuleg rakningarvensl með pörun mánudaginn 11. apríl kl 17:00 í VR-II við Hjarðarhaga. Húsið opnar 16.30 og boðið verður upp á kaffi og páskaegg.

Ágrip: Línuleg rakningarvensl koma ósjaldan fyrir í lausnum verkefna. Þau eru nátengd margliðum og því má nota margliður til að varpa ljósi á ýmsa eiginleika þeirra. Meðal annars verður skilvirku reikniriti til að reikna með þeim gefið, lokað form ýmissa runa leitt út og sýnt er að þau eru lokuð undir ýmsum reikniaðgerðum. Lauslega er talað um hagnýtingar þeirra.

Kveðja,
Stjórnin
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages