Google Groups no longer supports new Usenet posts or subscriptions. Historical content remains viewable.
Dismiss

mex/indó/íslenzkt

0 views
Skip to first unread message

Bjorn Helgason

unread,
Feb 5, 2001, 11:14:12 AM2/5/01
to
Ég er persónulega ekki mikið fyrir að fara nákvæmlega eftir uppskriftum.

Nota þær meir sem hugmyndabanka um eitthvað sem vert væri að prófa.

Það sem mér finnst mest spennandi að prófa er að blanda saman áhrifum
frá
Mexikönskum mat blandað saman við indónesískan og setja í þetta Íslenzk
áhrif.

Þannig finnst mér áhugavert að hafa marga smárétti og hafa mat smátt
skorinn.
Hafa mörg krydd við höndina og sem mest fersk.

Síðan að nota þessar aðferðir við íslenzk hráefni.

Það hefur gefið mjög góða raun að nota saltfisk í alls kyns rétti þar
sem annars hafa verið notað kjöt.

Einnig er spennandi að nota mör og tólg sem blöndur í pottrétti.

Hafa aðrir verið að gera svipaðar tilraunir ?

Mér finnst ekkert atriði að hafa annað hvort kartöflur, hrísgrjón eða
spaghettí með mat.
Nota gjarnan allar tegunur eða engar.

Á sama hátt að nota brauð með eða ekki.

Mexikanska aðferðin að vera með bökur og taka ýmsa rétti og vefja inn og
vera þá með fjölmörg
mismunandi hráefni borin fram.

Það væri fróðlegt að heyra hvað mönnum finnst um að blanda saman
mismunandi matarsiðum og venjum.


/Gosi

0 new messages