Google Groups no longer supports new Usenet posts or subscriptions. Historical content remains viewable.
Dismiss

trönuberjahlaup

20 views
Skip to first unread message

Elias Halldor Agustsson

unread,
Dec 22, 2003, 6:30:51 PM12/22/03
to
1 pakki trönuber
2 bollar af vatni
1 bolli sykur
4 blöð af matarlími
1 teskeið kanill
1/2 teskeið múskat
1/4 teskeið negull
1/8 teskeið allrahanda

Skolið trönuberin í sigti. Hellið trönuberjum og vatni í stálpott og
setjið á góðan hita. Hafið flatbotna trésleif við hendina. Hrærið vel
allan tímann. Þetta (eins og allar góðar uppskriftir) krefst stöðugrar
árvekni og ástríkrar umhyggju.

Bætið matarlími út í þegar berin hafa öll sprungið og síðan sykrinum
smátt og smátt. Setjið kryddið út í. Bætið vatni í eftir þörfum. Gætið
þess að brenna aldrei við. Sjóðið þar til trönuberin eru orðin að
einsleitum graut. Hellið (já, það á að vera hægt að hella, en það á samt
ekki að vera þunnt) í mót og látið standa yfir nótt. Geymist í kæli,
ekki lengur en í 10 daga.

Berist fram með villibráð, aligæs eða kalkún. Hitið mótið snöggt þannig
að hægt sé að hvolfa hlaupinu úr því á kristalskál.

0 new messages