Teamspeak (fundarforrit)

9 views
Skip to first unread message

steinste

unread,
Dec 4, 2010, 6:33:33 PM12/4/10
to Icelandic Linguistic Team
Teamspeak er frítt tölvuforrit þar sem hægt er að halda fundi á netinu
og margir geta talað saman. Tölvan þín verður að vera með hátalara og
hljóðnema ef maður vill láta heyra í sér ;) Zeitgeist hreyfingin notar
þetta fyrir mörg af sínum teymum og svo er hægt að droppa þarna inn og
bara spjalla við einhverja sem tala sama tungumál og þú.

Alþjóðlega tungumálateymið heldur núna fundi vikulega á ensku, á
laugardögum kl.19. Þar er hægt að koma og bara hlusta eða spjalla og
spyrja spurninga ef maður vill. Mjög almennilegt og skemmtilegt fólk
sem er æst í að hjálpa og útskýra allt sem þú þarft að vita skref
fyrir skref.

Við í íslenska þýðingarteyminu getum líka haldið fundi þarna hvenær
sem er.

1) Hérna eru leiðbeiningar á ensku til að setja upp Teamspeak forritið
í tölvunni þinni: http://www.thezeitgeistmovement.com/wiki/index.php?title=Teamspeak

2) Hérna er myndband á ensku með leiðbeiningum til að setja upp
Teamspeak: http://www.youtube.com/watch?v=EJ4c53yadL4

Endilega spyrjið mig ef eitthvað vefst fyrir ykkur :)

Kv. Steinunn

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages