Ég heiti Leifur Eiríksson og bý í Reykjavík. Ég uppgötvaði Zeitgeist
myndina fyrstu stuttu eftir að hún kom út en þá var ég í mikilli leit
að sannleikum og spillingu í heimssamfélaginu og hef síðan sýnt öðrum
hana. Að sjálfsögðu sá ég þá líka mynd númer tvö og "Zeitgeist
Orientation Presentation". Ég hef líka kynnt mér Venus Project sem ég
tel algjörlega eina fýsilegustu framtíðarsýn sem ég hef heyrt um og
hef mikla trú á að einskær vilji Peter Josephs og Jacque Fresco til að
skapa betri framtíð fyrir allt mannkyn muni skila sér og vil ég
endilega hjálpa við að hún verði að raunveruleika.
Ég er sáttur við að hafa Steinunni sem coordinator þar sem mér sýnist
hún öflug í að láta hluti gerast og ég hafði fyrst og fremst áhuga á
að leggja fram ensku og íslensku kunnáttu mína í þetta verkefni frekar
en mikla umsjón. Hvað varðar enskukunnáttu hefur hefur hún alltaf
verið mér auðveld, lærði ensku í Verzlunarskólanum á sínum tíma, þó
svo að ég hafi áttað mig á að viðskiptafræði væri ekki eitthvað sem ég
vildi leggja fyrir mig á sínum tíma kláraði ég samt skólann, en þar er
einmitt kennd viðskipta enska þannig að ég ætti að hafa nægilegan
skilning á þeim hugtökum sem rætt er um í myndinni, þar fyrir utan hef
ég alla tíð rætt svona málefni við mannsekjurnar í nánasta umhverfi
mínu og þykist þ.a.l. hafa nokkra æfingu í að koma þessum pælingum og
hugmyndum til skila á íslensku.
Þannig að ég hlakka til að byrja á þessu og að taka þátt!
kveðja,
Leifur.
> --
> You received this message because you are subscribed to the Google Groups "Icelandic Linguistic Team" group.
> To post to this group, send email to icelandic-li...@googlegroups.com.
> To unsubscribe from this group, send email to icelandic-linguist...@googlegroups.com.
> For more options, visit this group at http://groups.google.com/group/icelandic-linguistic-team?hl=is.
>
>
--
Leifur Eiríksson
e-mail: leif...@gmail.com
phone: +354 865 7537
S
--
Hvaða forrit nota ég ?
Já og þarna ef það er búið að taka 0-150 á ég þá ekki bar a að taka 150-160 jafnvel 170 ef þú treysti mér til