Aðalfundur BDSM á Íslandi 19. febrúar 2009

2 views
Skip to first unread message

bd...@bdsm.is

unread,
Feb 15, 2009, 1:18:18 PM2/15/09
to icelan...@googlegroups.com
Stjórn BDSM á Íslandi boðar hér með til aðalfundar fyrir árið 2008 fimmtudaginn 19. febrúar 2009. Hefst fundurinn stundvíslega kl 19:30. Skráning á aðalfundinn er á bdsm©bdsm.is og verður við skráningu staðsetning aðalfundarins send til baka.

Ath. lesa vel byrjunina á 4. grein!


4gr.
Félagsárið samsvarar almanaksári. Aðalfund hvers árs skal halda á milli 31.desember þess árs og 1.apríl næsta árs. Rétt til fundarsetu og atkvæðaréttar á aðalfundi hafa þeir félagsmenn sem skuldlausir eru við félagið. Félagsmaður telst sá einstaklingur sem greitt hefur félagsgjald. Eindagi félagsgjalds er 31. desember hvers félagsárs. Aðalfundur er æðsta vald félagsins og tekur þær ákvarðanir um starfssemi félagsins sem þörf er á. Til hans skal boða skriflega eða með tölvupósti með minnst 3 vikna fyrirvara. Allar lagabreytingar eða tillögur um að leggja félagið niður skulu hafa borist stjórn félagsins skriflega eða rafrænt með staðfestum hætti, minnst tveimur vikum fyrir fundinn og vera auglýstar af stjórn félagsins skriflega og/eða með tölvupósti til félagsmanna eigi síðar en viku fyrir fundinn.
Á dagskrá aðalfundar skal vera:
-Skýrsla stjórnar og reikningar
-Lagabreytingar
-Kosningar í stjórn og embætti
-Önnur mál


5. gr.
Stjórn félagsins skal skipuð 5 mönnum. Skulu þeir kosnir á aðalfundi.
Stjórn kýs sér formann og skiptir með sér verkum að öðru leyti.
Formaður boðar stjórarmenn til stjórnarfunda. Úrslitum á stjórnarfundi
ræður afl atkvæða, en séu þau jöfn, ræður atkvæði formanns.

Stjórnin boðar til aðalfundar og aukaaðalfunda þess á milli ef þurfa
þykir. Stjórnin undirbýr fundarmálefni, framkvæmir fundarályktanir og
skipulegur og stjórnar starfsemi félagsins.

Stjórnin hefur eftirlit með öllum framkvæmdum félagsins og hefur á
höndum sér eftirlit með eignum þess, innheimtir félagsgjöld og sér um
greiðslu á gjöldum félagsins. Stjórnin gætir í öllu hagsmuna félagsins
og getur leitað aðstoðar landslaga og réttar í málefnum félagsins ef
hennar er þörf.


8. gr.
Sérhver skuldlaus félagsmaður getur krafist þess skriflega til
stjórnar félagsins, að hún boði til aukaaðalfundar. Stjórnin getur
einnig boðað til aukaaðalfundar. Í skriflegri kröfu um aukaaðalfund
skal tilgreina hvaða efni skuli taka á dagskrá. Stjórn skal halda
aukaaðalfund innan tveggja mánaða frá því að krafa um aukaaðalfund var
lögð fram og auglýsa hann skriflega og/eða með tölvupósti tveimur
vikum fyrir fundinn. Rétt til setu og þátttöku í umræðum á
aukaaðalfundi hafa allir skráðir félagsmenn, en atkvæðisrétt hafa
eingöngu skuldlausir félagsmenn. Aukaaðalfundur getur samþykkt með
einföldum meirihluta að boða til aðalfundar.


9. gr.
Aðalfundur hefur rétt til að leggja félagið niður. Sjóðir eða eignir
félagsins munu við slit félagsins renna til annarra formlegra félaga
eða hópa sem stunda almenna kynfræðslu, BDSM fræðslu eða til
góðgerðarstarfssemi.


Með vegsemd og virðingu
Stjórn BDSM á Íslandi


BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: http://bdsm.is
Netfang: bd...@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Glitnir 0515-26-004911

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages