BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega munch fimmtudaginn 8. janúar næstkomandi.
Munchið hefst stundvíslega kl 20:00 og hvetjum við fólk til að mæta tímanlega því fjölmenni hefur verið mikið á undanförnum munchum með tilheyrandi stólaskorti.
Munchið verður að þessu sinni haldið á annari hæð Tabasco's við Ingólfstorg (við hliðina á Baltasar áður Café Victor), þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir lítinn pening.
Umræðuefni kvöldsins er hvað á að gera á nýju ári en að sjálfssögðu er líka hægt að ræða um BDSM, fetish, annan perraskap og þjóðlífið.
Endilega fjölmennum á Tabasco's, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.
Við verðum þarna í góðum hópi á efri hæðinni.
Með flengikveðjum
Stjórn BDSM á Íslandi
BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: http://bdsm.is
Netfang: bd...@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Glitnir 0515-26-004911