BDSM á Íslandi mun halda hið árlega jólamunch fimmtudaginn 18. desember nk. Á boðstólum verður hefðbundið jólahlaðborð; hamborgarhryggur, hangikjet, graflax og desert ásamt kynstrunum öllum af meðlæti og góðgæti.
Munchið verður að þessu sinni haldið á heimili félagsmanns og þarf því að boða komu sína í gegnum email bd...@bdsm.is fyrir kl 22:00 miðvikudaginn 17.desember. Sent verður meil til baka um hæl með staðsetningu munchins.
Verðið fyrir kræsingarnar er óháð kreppunni og Seðlabankanum og er aðeins 1.500kr fyrir utanfélagsmenn og 1.000 kr fyrir félagsmenn. Þetta eru smápeningar fyrir allt gúmmulaðið sem á borðum verður.
Hægt er að borga í gegnum heimabanka (sjá upplýsingar um reikningsnr og kennitölu í undirskrift) eða í reiðufé á staðnum. Athugið að við verðum ekki með posa. Þeir sem borga í gegnum heimabanka eru vinsamlegast beðnir að koma með útprentaða kvittun fyrir millifærslunni á staðinn.
Athugið að ekki verður munch á þriðjudeginum 16. des.
Við hvetjum fólk eindregið að skrá sig á munchið með jólasveinahúfuna og jólaskapið og njóta góðs félagsskapar og matar í jólatíðinni.
Með jólaperrakveðjum
Stjórn BDSM á Íslandi
BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: http://bdsm.is
Netfang: bd...@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Glitnir 0515-26-004911