BDSM Kaffihúsakvöld (MUNCH), fimmtudaginn 3. september

2 views
Skip to first unread message

BDSM á Íslandi

unread,
Aug 31, 2009, 7:17:47 PM8/31/09
to icelan...@googlegroups.com
DSM á Íslandi mun halda sitt reglulega kaffihúsakvöld (munch)
fimmtudaginn 3. september næstkomandi.
Í leiðinnii viljum við minna á að við hittumst þar á eftir
þriðjudaginn 15. september, á sama stað og sama tíma.

Hittingurinn hefst kl 20 og stendur til um kl 22. Allir eru
hjartanlega velkomnir.

Við verðum á veitingastaðnum Tabasco's við Ingólfstorg (
http://www.tabascos.is/ ), þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir
lítinn pening. Við verðum á efri hæðinni og hægt er að spyrja um
S-hópinn.

Allt sem sagt er á fundinum er trúnaðarmál þeirra sem saman eru
komnir. Full nafnleynd ef þú kýst svo, og þá getur þú notað gælunafn,
eða nikk. Hversdags klæðnaður gildir.

Umræðuefni kvöldsins verður meðal annars búningapartíið helgina 18-20
september. Matur verður á laugardainn, á 2.500 kr. og gisting er
4.000 kr. nóttin. Það þarf að láta vita fyrir 5. september hvaða daga
fólk mætir. Frekari upplýsingar verða gefnar á staðnum.

Endilega fjölmennum á Tabasco's, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.
Einnig tökum við á móti greiðslu félagsgjalds fyrir 2009 sem er kr
1.500. Nýir félagar velkomnir.

Kær kveðja
Stjórn BDSM á Íslandi

--
BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: http://bdsm.is
Netfang: bd...@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Íslandsbanki 0515-26-004911

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages