BDSM Kaffihúsakvöld (Munch) 18. ágúst

4 views
Skip to first unread message

BDSM á Íslandi

unread,
Aug 14, 2009, 7:13:03 PM8/14/09
to icelan...@googlegroups.com
BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega kaffihúsakvöld (munch)
þriðjudaginn 18. ágúst næstkomandi. Einnig mynnum við á að við hittumst
einnig fimmtudaginn 3. september, á sama stað, sama tíma.

Hittingurinn hefst kl 20:00 og stendur til um kl 22. Allir eru
hjartanlega velkomnir. Við verðum á veitingastaðnum Tabasco's við
Ingólfstorg (við hliðina á Baltasar áður Café Victor), þar sem er
fjölbreyttur matseðill fyrir lítinn pening. Við verðum á efri hæðinni
og hægt er að spyrja um S-hópinn.

Allt sem sagt er á fundinum er trúnaðarmál þeirra sem saman eru
komnir. Full nafnleynd ef þú kýst svo, og þá getur þú notað gælunafn,
eða nikk. Hversdags klæðnaður gildir.

Umræðuefni kvöldsins verður opið.

Endilega fjölmennum á Tabasco's, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.

Einnig tökum við á móti greiðslu félagsgjalds fyrir 2009 sem er kr
1.500. Nýjir félagar velkomnir.

Kær kveðja
Stjórn BDSM á Íslandi
--
BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: http://bdsm.is
Netfang: bd...@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Íslandsbanki 0515-26-004911

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages