BDSM á Íslandi mun halda sitt reglulega munch þriðjudaginn 18. nóvember næstkomandi.
Munchið hefst stundvíslega kl 20:00 og hvetjum við fólk til að mæta tímanlega því fjölmenni hefur verið mikið á undanförnum munchum með tilheyrandi stólaskorti.
Munchið verður að þessu sinni haldið á annari hæð Tabasco's við Ingólfstorg (við hliðina á Café Victor), þar sem er fjölbreyttur matseðill fyrir lítinn pening.
Umræðuefni kvöldsins er Jólamunch og undirbúningur fyrir það en að sjálfssögðu er líka hægt að ræða um BDSM, fetish, annan perraskap og þjóðlífið.
Endilega fjölmennum á Tabasco's, borðum saman og eigum góða kvöldstund saman.
Við verðum þarna í góðum hópi á efri hæðinni.
Með flengikveðjum
Stjórn BDSM á Íslandi
BDSM á Íslandi
Kennitala: 491199-2969
Veffang: http://bdsm.is
Netfang: bd...@bdsm.is
Póstfang: PO Box 5068, 125 Reykjavík
Bankareikningur: Íslandsbanki 0515-26-004911