Fyrsta útgáfan af stafsetningarviðbót, byggð á íslenska Wiktionary

43 views
Skip to first unread message

Björgvin Ragnarsson

unread,
Mar 19, 2012, 3:54:36 PM3/19/12
to hunsp...@googlegroups.com, openo...@openoffice.is
Hæ,


Ég var að gefa út fyrstu útgáfuna af LibreOffice viðbótinni (hún er
OpenOffice samhæf) og hægt er að nálgast hana hér:
http://extensions.libreoffice.org/extension-center/hunspell-is-the-icelandic-spelling-dictionary-project

Einnig bætti ég stuðning í kóðann til að búa til Firefox viðbót, hægt
er að nálgast hana hér:
http://www.nethal.net/action/download?ref=5FFAA70B394418E7BD14CA7B530F8C481.
Ath. að ekki er stuðningur við samsetningu orða í þessari útgáfu á
meðan núverandi Firefox viðbót setur saman orð á alla kanta. Ég er
ekki alveg búinn að gera upp við mig hvað sé best að gera þegar kemur
að samsetningu orða en hugmyndir eru vel þegnar.

kv.


Björgvin Ragnarsson

Bragi Halldorsson

unread,
Mar 20, 2012, 9:57:37 AM3/20/12
to hunsp...@googlegroups.com
Er þetta sama útgáfan og þú vísaðir á á Facebook eða nýrri?

kv
Bragi

Björgvin Ragnarsson

unread,
Mar 20, 2012, 10:36:25 AM3/20/12
to hunsp...@googlegroups.com
Þetta er sú sama, útgáfunúmerið er dagsetningin.

kv.

Björgvin

Bragi Halldorsson

unread,
Mar 20, 2012, 11:00:45 AM3/20/12
to hunsp...@googlegroups.com
Ef ég man rétt var búið að minnast á lista yfir algengi orða, það er
algengustu orðin í Íslensku. Ertu að nota þann lista, eru til dæmis
öll þau orð inni í wiktionary, ef ekki, þyrfti sá listi ekki að vera
einhverstaðar handhægur svo hægt væri að saxa á hann með því að færa
hann inn í wiktionary frekar en vera að setja þar inn orð
handahófskennt?

kv
Bragi

Björgvin Ragnarsson

unread,
Mar 20, 2012, 12:23:24 PM3/20/12
to hunsp...@googlegroups.com
Það væri mjög gagnlegt að hafa svoleiðis lista. Google gæti útvegað
hann: http://www.chromium.org/developers/how-tos/editing-the-spell-checking-dictionaries.

kv.

Björgvin

Björgvin Ragnarsson

unread,
Mar 28, 2012, 6:33:42 AM3/28/12
to hunsp...@googlegroups.com
Ég sendi tölvupóst og fékk til baka að þessi listi væri ekki í boði
lengur. Hér er listi sem hægt væri að notast við:
https://en.wiktionary.org/wiki/Wiktionary:Frequency_lists#Icelandic.
Ég gæti líka tekið upp á því að útbúa orðtíðnilista út gögnum íslensku
wikipedíu.

Ég held það væri sniðugt að setja saman lista yfir 100 algengustu
orðin sem stafsetningarorðabókin þekkir ekki og stefna á útgáfu þegar
þau eru komin inn.

kv.

Björgvin

Bragi Halldorsson

unread,
Mar 28, 2012, 6:57:56 AM3/28/12
to hunsp...@googlegroups.com
Ég sé að megnið af orðunum á þessum lista hér eru komin:

https://en.wiktionary.org/wiki/Wiktionary:Frequency_lists/Icelandic_wordlist

aðallega eru það orð eins og „skilurðu“ í stað „skilur þú“ sem vantar
sem og ýmsar beygingar af til dæmis eignarfornöfnum eins og „þínum.“
Skil ekki alveg afhverju beygingar orða eru sýndar með rauðu á þessum
lista ef stofnorðið er til og þar með beygingar þess.

kv.

Björgvin Ragnarsson

unread,
Sep 15, 2012, 7:37:10 PM9/15/12
to hunsp...@googlegroups.com
Ég fann betri orðtíðnilista, Framburðarorðabókina:  http://www.malfong.is/index.php?pg=framburdur. Í henni eru 51558 orð, þar af 3848 sem ekki eru í hunspell-is. Listinn inniheldur ekki erlend orð eins og eru á Wiktionary orðtíðnilistanum, en það gætu leynst villur.

Ég held það vær sniðugt að stoppa í götin í hunspell-is með Framburðarorðabókinni svo ég setti saman þetta skjal til að auðvelda samvinnu í yfirlestri:  https://docs.google.com/spreadsheet/ccc?key=0Ag6sYRl_wciAdHlTczVNanVvU3RnNVRNV1hJWUMxdGc#gid=0

kv.

Björgvin
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages