Takk fyrir að láta vita.
Er ekki búinn að vera mikið í mannabyggðum, loksins þegar ég
náði að kíkja á þetta fékk ég meldinguna:
"Niðurhal
Sendandi:
nifg...@gmail.com
Skrá: hunspell-is-2012.08.08.oxt
Skrá hefur verið fjarlægð af miðlaranum."
Sem þýðir náttúrulega að umsjónarmaður
www.nethal.net þyrfti
að athuga stafatöflurnar sínar ;-)
Annars var ég að renna yfir LibreOffice póstlistana; það er
böggur í innbyggðu stafsetningarorðabókunum núna í
LO-3.6.0_RCx - staðfærslufólkið vill meina að þetta sé
"showstopper" (?? "veisluspillir" ??) en kóðanördar vilja
gefa þetta samt út. Veit ekki hvort þetta hefur áhrif á
viðbætur.
Það væri gaman að prófa viðbótina, mátt senda mér í pósti.
Bkv,
Sveinn
Þann mið 8.ágú 2012 23:53, skrifaði Björgvin Ragnarsson:
> Halló,
>
>
> Ég er að vinna í samheitaorðabók (e. thesaurus) fyrir LibreOffice.
> Eins og hunspell orðabókin þá eru upplýsingarnar fengnar út íslenska
> Wiktionary.
>
> Hér er beta útgáfa í formi LibreOffice viðbótar sem þið getið prófað:
>
http://www.nethal.net/action/download?ref=f78ec1e7-b214-460b-8773-c80cf68d3e25
> . Og hér er orðabókarskráin fyrir forvitna
>
http://pastebin.com/H0ukKNY5 og index skrá
>
http://pastebin.com/P7gdeA6s . Kóðinn til að búa til þessar skrár er
> hér:
https://github.com/nifgraup/hunspell-is/blob/master/makethes.sh .
>
>
> Öll hjálp er vel þegin, ekki síst viðbætur á samheitum orða í Wiktionary!
>
>
> kv.
>
> Björgvin
>