Greining verkfræðings vegna leka á 21

12 views
Skip to first unread message

logi...@gmail.com

unread,
Sep 19, 2007, 4:47:03 AM9/19/07
to Hjallabraut 13-25
Leki á íbúð á 2 hæð

Á mynd 1 sést flasning við norðurgafl sigahúss nr 21. Undirritaður
telur að þrálátur leki sem kemur fram í íbúðum á 2 og 3. hæð næst
gafli stafi af því að vatn kemst inn með þessari flasningu. Vatnið
lekur svo niður með innanverðum útvegg 3. hæðar niður um lítið gat á
gólfplötunni, gat þetta hefur verið borað með steinbor, sennilega áður
en svalaskýli kom. Lekinn veldur litlum skemmdum á íbúð 3. hæðar en
skemmdir á útveggjum og lofti íbúðar á 2 hæðar er meiri þar sem búið
er að fjarlægja vegg milli svala og íbúðar.

Tillagan undirritaðs er sem sagt að taka þessa flasningu upp og þetta
með henni ásamt því að loka gati í svalagólfi á svölum 3 hæðar.

Í ljós kom við skoðun að lekavandamál er víðar í svalaskýlum og þá
sérstaklega vegna núverandi frágangs plexi-glersþaka. Undirritaður
telur að endurhana þurfi og breyta frágangi plexi-glers þaka ef komast
á fyrir þráláta leka í þeim Mynd 2 sýnir hvernig plexsi-glers
þakplöturnar ná ekki fram á ál-klæddum þakkanti, sem gerir það að
verkum að vatn kemst inn í þakkant. Timburgrind og gluggar eru
blautir vegna þessa og er hætta á fúaskemmdum sjá mynd 3. Vatn
virðist leita frá þakkanti niður á milli glugga og kemur fram sem
skemmdir á spónaplötuklæðningu neðan við glugga. Einnig er
þéttilistar milli plexi-glerplatana víða óþéttir mynd 4 enda hefur
víða verið reynt að þetta með þeim með kítti.

Ekki er lagt mat á kostnað við aðgerðir þessar. Lagt er til að byrjað
verði á því að stöðva lekan sem list er í lið 1 og fara jafnframt í að
hanna breytingar á þakfrágangi svalaskýli til að leysa lið 2.

Undir þetta skrifar :
Héðin Hákonarson
Byggingatæknifræðingur

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages