Góðan kvöldið stjórnarmeðlimir Hjallabrautar 13-25,
Nokkur mál sem ég vildi segja frá:
Aðalfundur
Ég verð að fresta aðalfundi fra í maí, hef verið að reyna að pressa á
Önnu að fá bókhaldið. Fékk það loksins í seinustu viku en þá var það
bara 1980-2005 þannig að mig vantar enn 2007 frá henni sem ég hefði
viljað hafa fyrir aðalfund/endurskoðun.
Girðinging
Ætlaði að fara yfir það mál þegar ég hefði kostnaðinn sundurlilðaðan,
sem ég hef ekki þ.s. ég hef ekki 2007 bókhaldið og hef ekki fengið
nánari skýringar á kostnaði frá Önnu. Einnig hef ég ekki heyrt
formlega tölu um hvað svona grindverk kostar. Heyrði af einum sem
rukkaði 250þ +VSK fyrir 100m grindverk + tréstaurar( ekki steyptir ).
Í gamalli fundargerð( frá c.a. 2000 ) sá ég að tilboð í grindverk voru
400þ og 600þ en hef ekkert skoðað hvað var inní þeim tilboðum. Þannig
að þetta mál er enn á lífi og verður tekið fyrir við tækifæri.
Lekamál
Leki á 21 er ferkar aðkallandi og við þurfum að ákveða á næsta fundi/
aðalfundi hvort við förum í einhverja úttekt á húsinu.
Sandur í sandkassann
Ætla að kaupa sand á næstunni, legg þá bara reikning fram á næsta
fundi ef við fundum ekki áður en það verður.
Hreinsunardagur
Fer að líða að því að við höldum hreinsuardag, vil bara vera viss um
að vetur sé farinn og ekki allt rennandi blautt( sem er kanski bara
óskhyggja ). Þyrfti bara að ákveða dag sem fyrst.
Einhverjar hugmyndir/óskir um dagsetningu/tíma f. hreinsunardag?
Málum jafnvel bílastæðin í leiðinni, kantskerum í garðinum og síðan
væri frábært ef við gætum grillað í garðinum eftir þrif.
Áttu grill sem auðvellt er að koma út í garð?
fd
Þrif á teppum
Við( á Hjallabraut 23 ) erum að fá fagþrtif( sjá
http://www.teppahreinsun.com/Stigahus.php
) til að þrífa hjá okkur að morgni miðvikudagsins 30. maí...ef einhver
stigagangur vill fá svona þrif þá endilega látið mig vita sem fyrst
svo við getum fengið afslátt ;)