Sælir félagar,
Ég er búin að vera að fylgjast með umræðunum seinustu daga og hafa
tilfinningar mínar sveiflast mikið með þeim. Mig langar að íhuga með
ykkur þær vangaveltur sem komið hafa fram.
Ein er það að "einoka" starfsemi trúarinnar, ég skil ekki alveg hvað
það þýðir, það að rísa upp og þjóna tel ég ekki vera að einoka neina
starfsemi, Ólafur og Ragnheiður eru búin að þjóna seinustu allmörg ár
gríðarlega mikilvægari starfsemi, en þau einokuðu hana aldrei. Ég var
ekki nema 14-15 ára þegar við Daníel vorum að skipuleggja okkar eigin
unglingamót, allt frá því að bjóða öðrum að taka þátt, finna eldri
manneskjur til að vera með erindi og umsjón og ákveða staðsetningu, en
hún var haldin ýmist hjá Elsu, Skógum eða Kistufelli. Þetta gerðum við
þangað til að við vorum orðin nógu gömul til að sjá um mótin sjálf og
þá fengum við bara einhvern til að elda gómsætan mat fyrir okkur.
Engin þyrfti að hafa áhyggjur af að einoka starfsemi, stærð og magn
þeirra verkefni sem blasa við okkur kemur í veg fyrir það.
"Það er gríðarlega þýðingarmikið afrek að bahá´i heiminum hafi tekist
að þróa menningu sem hvetur til hugarfars, náms og verka þar sem allir
telja sig ganga sameiginlega braut þjónustu-styðja hvern annan og
sækja fram í sameinungu, með virðingu fyrir þekkingunni sem hver og
einn hefur fram að færa á sérhverju gefnu andartaki..." (Ridván 2010,
málsgrein 10)
Önnur hugmynd sem mér finnst alveg einkarlega furðuleg staðhæfing er
að "En á sama tíma hafa ekki allir bahá‘íar aðgang að starfsemi innan
trúarinnar – og það virðist einkum takmarkast við hvar „þú“ ert
staddur í þjálfunarferlinu".Mig langar að skilja við hvað er átt
hérna, hvaða starfsemi er ekki öllum opin? Það eru leiðbeiningar
þjálfunarstofnunar sem hefur gríðarlegt stórt ferli og vinnu á bakvið
hvernig Ruhi bækurnar voru byggðar upp, að þú þurfir að fara í gegnum
ákveðnar bækur til að taka þátt í ákveðinni starfsemi, eins og til að
leiðbeina þarftu að klára bók 7, til að hvetja þarftu að klára bók 5
o.s.frv. en hvernig annars getirðu ætlast til að skilja þá mikilfengnu
hæfileika ungmenna og hversu gríðarlega mikilvægu starfi þeir þurfa að
þjóna til að koma hinni nýju siðmenningu sem okkar heittelskaði
Bahá´u´lláh talar svo fögrum orðum um?
Þó að þú þurfir að fara í gegnum þjálfunarferlið til að taka þátt í
ákveðinni starfsemi, þýðir engan veginn að hún sé ekki opin hverjum
sem er, við bahá´i´ar störfum nótt sem nýtan dag í að reyna að finna
einstaklinga sem eru reiðubúnir að fórna tíma sínum í þjónustu við
mannkynið og hver sá sem hefur tekið þátt veit að það er ekki auðvelt
verk!
"Þegar menn og konur á ýmsum aldri halda áfram í námskeiðaröðinni og
ljúka hverju námskeiði fyrir sig með aðstoð leiðbeinanda verða aðrir
að vera tilbúnir að fylgja þeim eftir í þjónustustarfi sem er í
samræmi við styrkleika þeirra og áhugasvið-þetta á sérstaklega við um
umsjónarmenn sem bera ábyrgð á barnakennslu, unglingahópum og
námshringjum. Þessi þjónusta er meginforsenda þess að kerfið dafni og
blómgist." (Ridván 2010, málsgrein 12)
Annað, sem ég tók til mín persónulega var "að styðjast við „copy –
paste“ aðferðina – sem byggir á því að einhverjir fara á ráðstefnu eða
námskeið erlendis og endurtaka það svo á sama hátt hér – en það skilar
ekki alltaf tilætluðum árangri"
"Til að hjálpa öðrum að þróast hratt í þessa átt er skrifstofan að
setja upp kerfi lærdómssetra á öllum meginlöndum með aðstoð
sérþjálfaðs hóps átrúenda (handleiðara) en þetta kerfi verður hægt að
nota til að sjá umsjónarmönnum frá mörgum tugum umdæma fyrir þjálfun.
Þessir handleiðarar halda áfram að styðja umsjónarmenn eftir að þeir
snúa aftur til umdæma sinna og gera þeim kleift að skapa andlegt
umhverfi þar sem unglingakennslan getur fesst sig í sessi." (Ridván
2010, málsgrein 17)
Ef að einhver er ósámmála þessari aðferðafræði legg ég til að hann
taki það til skrifstofu samfélags- og hagþróunar í Haifa (OSED) þar
sem fyrirmælin koma frá þeim.
Önnur athugasemd var "Við þurfum því að finna leiðir til að geta unnið
saman sem heild – þar sem allir hafa sitt hlutverk og eiga hlutdeild í
því starfi sem á sér stað í samfélaginu." Það er heilmargt sem við
þurfum að læra í samvinnu og mun sá lærdómur ekki vinnast á einni
nóttu. En ég verð að segja að mín upplifun bæði heima við og í
ferðalögum mínum erlendis samræmist meira orðum Allsherjarhússins.
"Og í slíku ástandi starfa sálirnar stöðugt saman og fyllast frekar
gleði yfir framförum og þjónustu annarra en sínum eigin verkum. Þannig
beinast hugsanir þeirra ævinlega að því að aðstoða hverja aðra við að
ná sífellt hærri hæðum þjónustu við málstað hans og svífa í heiði
þekkingar hans. Þetta er það sem við sjáum í núverandi starfsmynstri
sem er að ljúkast upp um allan heim, í undirsjá ungra sem aldinna,
nýgræðinga og hinna gamalreyndu sem starfa hlið við hlið." (Ridván
2010, málsgrein 20)
Þetta kemur einnig að kannski alvarlegustu athugasemdinni, eða
vangaveltunni um predikun "Eins og við impruðum á í vangaveltum okkar
þá er upplifun okkar sú að það sé ákveðin safnaðarhyggja til staðar í
samfélaginu þ.e. að einn eða fáir einstaklingar hafa tekið að sér að
leiða samfélagið...Slíkur leiðtogi hefur safnað kringum sig hópi
auðsveipinna fylgjenda - rétt eins og góður prédikari eða prestur."
Þetta langar mig að íhuga og skilja betur. Stofnanir trúarinnar ná
ekki einungis yfir andlegu ráðin okkar, eftir því sem bahá´i
samfélagið vex og dafnar eru sífellt nýjar stofnanir settar á
laggirnar en þar með eru taldnir aðstoðarráðgjafarnir "Þau áhrif sem
álfuráðgjafarnir og aðstoðarráðgjafar þeirra hafa haft á þróun
áætlunarinnar sýnir að þeir hafa tekið sér sína réttu stöðu í
framvarðarsveitinni á vettvangi kennslunar." (Ridván 2010, málsgrein
24) Það er mikið ferli sem felst í að kjósa í stofnanir trúarinnar, og
eru eiginleikar eins og auðmýkt og réttlæti í hávegum hafðar. Að
einhver, eða einhverjir hafa safnað í kringum sig hópi auðsveipinna
fylgjenda finnst mér skrítin athugasemd, bæði þar sem það hefur farið
fram hjá mér, ég sé einungis einstaklinga sem reyna af mikilli
fórnfýsi og auðmýkt að gera daginn í dag betri en í gær, ef svo má að
orði koma, fyrir utan að mér finnst lítillækkandi að tala um
trúarsystkyni okkar sem hóp af auðsveipnum fylgjendum, og frekar
alvarleg ásökun.
Ég held hinsvegar að við eigum öll eitt sameiginlegt í þessum umræðum
og það er að við þráum öll að taka þátt í uppbyggingu nýs
heimskipulags. Nýs heimskipulags! Vá! Hausi mínum sundlar aðeins við
tilhugsunina.
"Það starf sem heldur áfram í öllum heimshornum í dag er síðasta
stigið í áframhaldandi viðleitni bahá´ia til að skapa kjarna þeirrar
dýrlegu siðmenningar sem er fólginn í kenningum hans, en uppbyggingin
er óendanlega flókið og risavaxið verkefni og það mun taka mannkynið
átakamiklar aldir að gera hana að veruleika, það er ekki hægt að
stytta sér leið, engar forskriftir eru til." (Ridván 2010, málsgrein
25)
Talandi um 2010, ég og nokkrir aðrir bahá´iar vorum svo undursmalega
blessuð að fá að fara á erlenda ráðstefnu í Svíþjóð, þar sem ástkær
vinur okkur Stephen Birkland var staddur. Hann talaði sífellt um að
skapa nýtt tungumál, ég skildi ekki alveg við hvað hann átti og er enn
að læra um það, en eitt veit ég að hann átti ekki við um esperantó!
"Kæru vinir: Hversu oft lýsti ekki meistarinn elskaði þeirri
von sinni að hjörtu átrúendanna myndu flóa yfir af ást hver til
annars, að þeir myndu ekki virða nein mörk aðskilnaðar heldur líta á
allt mannkynið sem eina fjölskyldu. Lítið ekki á neinn sem framandi,
"er hvatning hans; "lítið heldur á alla menn sem vini, því erfitt er
að finna ást og einingu ef þér festið sjónir á framandleika...ekkert
annað en allsherjarást sem fæst með valdi heilags anda. Er það ekki
ást á Guði sem brennir allar blæjur framandleika og aðskilnaðar og
bindur hjörtun saman í fullkominni einingu? Er það ekki ást hans sem
hvetur ykkur áfram á vettvangi þjónustu og gerir ykkur kleift að sjá í
hverri sál hæfileikann til að þekkja hann og tilbiðja? Eru þið ekki
stálsett af þeirri vitneskju að hann þoldi glaður þjáningarfullt líf
vegna ástar sinnar á mannkyninu? Lítið innan ykkar eigin raða, á kæra
bahá´i bræður og systur í íran. Eru þau ekki dæmi um hugrekki sprottið
af ást á Guði og þrá til að þjóna honum? Ber ekki hæfileiki þeirra til
að hefja sig yfir grimmilegustu og bitrustu ofsóknir vitni um
hæfileika milljóna og aftur milljóna af kúguðu fólki í heiminum til að
rísa upp og taka afgerandi þátt til að byggja ríki Guðs á jörðu?
Haldið áfram óbuguð af sundrandi félagslegum öflum, og færið boðskap
Bahá´u´lláh sálum sem bíða..í öllum heimshornum, laðið þær að
samfélagi Hins mesta nafns. Þið hverfið aldrei úr hugum okkar og bænum
og við munum halda áfram að biðja hinn Almáttuga um að styrkja ykkur
með undursamlegri náð sinni." (Ridván 1010, málsgrein 33)
2012/11/4 Eðvarð <
edv...@gmail.com>: