Saman á jafnréttisgrundvelli

10 views
Skip to first unread message

Ragnheiður Ragnarsdóttir

unread,
Nov 6, 2012, 6:15:32 PM11/6/12
to bahai_...@googlegroups.com

Heil og sæl öll

Það er ekki nokkur vafi í okkar huga að öll stefnum við að sama markmiði og vinnum undir leiðsögn Allsherjarhúss réttvísinnar. Það er þó alltaf spurning hvort það sé við hæfi að beita vísunum í ritningar trúarinnar eða skilaboð Allsherjarhúss réttvisinnar máli sínu til stuðnings. Við eigum að nota það sem leiðsögn en ekki „vopn“ í rökræðum. Það er ef til vill kjörið að koma saman og lesa í heild þá leiðsögn sem okkur hefur verið gefin undanfarin ár, í stað þess að búta hana niður og lesa bara valda kafla.

Þegar talað er um að feta stigu þjónustu og vinna hlið við hlið er mikilvægt að það sé gert sem jafningjar, en ekki þannig að annar aðilinn sé leiðandi og hinn fylgi. Þetta eru hlutir sem gerast oft á tíðum án meðvitundar. Eitt lítið og saklaust dæmi um það er þegar umdæmissamkoma var haldin í Hafnarfirði, heima hjá Óla Bjarna og Golnaz. Við, rétt eins og aðrir, fylgdum þeim sem fyrstur fór og bankaði á rangar dyr – þó svo okkur væri fullkunnugt um að þau hjón byggju í næsta húsi. Segja má að þarna höfum við fylgt í blindni – þó um veiga lítið mál hafi verið að ræða.

Við þurfum að gæta þess að við eigum að vinna saman á jafnréttisgrundvelli, en ekki vera auðsveipir fylgjendur. Þurfum að vera vakandi og meðvituð um hlutverk okkar og ábyrgð. Allir þurfa hvatningu og finna að framlag þeirra skiptir máli.

Með bahá‘í kveðju

Ragnheiður og Ólafur

 

Eðvarð

unread,
Nov 6, 2012, 6:50:53 PM11/6/12
to bahai_...@googlegroups.com
Er þetta þá ekki bara spurning um sjónarhorn? Mér sýndist Linda
nefnilega hnykkja á því í sínum pósti að öll stefndum við að sama
markmiði og vitnaði máli sínu til stuðnings í skilaboð
Allsherjarhússins Réttvísinnar :)

Kv. Eðvarð


2012/11/6 Ragnheiður Ragnarsdóttir <ragn...@internet.is>:
--
Góð kveðja,

Eðvarð Taylor Jónsson
Túngötu 11
230 Keflavík
Gsm 772 4878 (nova) / 612 8072 (tal)
Heimasími: 445 8072
edv...@gmail.com

linda edvardsdottir

unread,
Nov 6, 2012, 7:03:12 PM11/6/12
to bahai_...@googlegroups.com

Ja, hljomar vel, eg er til i ad bjoda heimili mitt, eda hvort ad vid viljum hittast a oldugotunni, vaeri gaman ad lesa ridvan brefid saman og vera med samrad i bahai anda. Kaerar kvedjur ur drapuhlidinni

P.s. dad var yndisleg baenastund i kvold, vorum bara drju en mjog kozy, naesta dridjudag aetlum vid ad lesa um kosningar :) Allir velkomnir

Karen Knútsdóttir

unread,
Nov 7, 2012, 10:39:21 AM11/7/12
to bahai_...@googlegroups.com
Mikilvægt að tala og koma fram á jafnréttisgrundvelli ef við ætlum öll sem eitt, eftir okkar bestu getu, að vera saman á jafnréttisgrundvelli.

Kær kveðja :)

Karen Knútsdóttir

unread,
Nov 9, 2012, 5:10:49 PM11/9/12
to bahai_...@googlegroups.com

"Say! God verily cultivateth on earth as he plaeaseth, at is bidding. Will ye not behold? Think ye that ye are the sowers? Say! Glorified be God! We are, verily, the Cultivators. Say! Gaze ye then upon all even as ye behold the most exalted of the renowned amongst you. Verily, that which is shared by both the rulers and those who farm the land is one thing: they all abide by the bidding of God."

Kitábu'l-Asmá "Gate of the heart", 81-82

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages