Enn af mannréttindum - núna trúfrelsi, skoðanafrelsi og tjáningarfrelsi.

1 view
Skip to first unread message

hrei...@mi.is

unread,
Feb 18, 2012, 7:33:39 AM2/18/12
to bahai_...@googlegroups.com
Góðan daginn,

Um daginn átti ég orðræðu við nokkra frábæra einstaklinga um
samkynhneigð og réttindi samkynhneigðra. Ég varð ríkari af þekkingu
fyrir vikið. Nú hefur vaknað hjá mér spurning sem tengist þessu.
Spurningin er: Ef maður hefur tiltekna skoðun og sú fer ekki saman við
viðtekna skoðun almennings, og tjáir þá skoðun opinberlega, er þá
réttmætt að grípa til opinberra ofsókna gegn manninum og hrekja hann frá
lifibrauði sínu?

Þetta kallar á aðra spurningu sem verður að svara í leðinni: Ef ég
trúi á Guð og ritningin segir að tiltekin hegðun sé synd og ég síðan
játa þessa trú mína opinberlega - er ég þá með hatursáróður gegn þeim
minnihlutahópi sem hegðar sér á þennan tiltekna hátt?

Mig langar til að vekja máls á þessu atriði og kannski í tengslum við
tjáningarfrelsið, hvort við viljum kannski hafa tjáningarfrelsi og
skoðanafrelsi en viljum stýra bæði skoðana- og tjáningarfrelsi annarra.


Vonandi eru þetta vekjandi spurningar svona á laugardegi. Ég vona samt
að við læsumst ekki inni í deilum um samkynhneigð eða Snorra Óskarsson
því að hvorttveggja er að mínu mati aðeins "leikmunir" í hinni stóru
uppsetningu fer fram á sviði mannréttinda.


Bestu kveðjur
Hreiðar Eiríksson

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages