Kæru félagar,
Í vor hefur verið mikill gangur í stærðfræðikeppnum,
Fyrst ber að nefna að dagana 23.-27. mars tóku íslenskir nemendur þátt í norrænum þjálfunarbúðum fyrir
Norrænu stærðfræðikeppnina, sem fór fram í Lundi í Svíþjóð. Búðunum lauk síðan með þátttöku í sjálfri Norrænu stærðfræðikeppninni. Patrek Ragnarsson var efstur í keppninni með 28 stig af 28 mögulegum.
Í apríl voru
Evrópuleikar stúlkna í stærðfræði haldnir í Bordeaux í Frakklandi og sendi Ísland lið þangað í fyrsta skipti. Í liði Íslands voru Mary Lilja Ingimundarson, MR, Nicole Jóna
Jóhannsdóttir, MR, Snædís Hanna Jensdóttir, MA og Snædís Jökulsdóttir,
MR. Liðsstjóri var Álfheiður Edda Sigurðardóttir og fararstjóri Nanna
Kristjánsdóttir. Þátttaka Íslands í EGMO markar mikilvægt skref í að efla þátttöku
stúlkna í stærðfræðikeppnum og hvetja fleiri ungar konur til að leggja
stund á stærðfræði og raunvísindi.
Ísland tók einnig þátt í nýstofnuðum Evrópuleikum í stærðfræði, sem haldnir voru í Vilníus í Litháen dagana 23.-29. apríl. Í liðinu voru Daði Logason (MR), Elvar
Magnússon (VÍ), Magnús Thor Holloway (MR) og Þorsteinn Snæland (MR).
Liðsstjóri var Benedikt Jóhannesson og fararstjóri Marteinn Þór
Harðarson. Þar hlutu Magnús, Daði og
Þorsteinn heiðursviðurkenningu fyrir lausnir sínar.
Nú standa yfir æfingar hjá þeim nemendum sem fara á
Alþjóðlegu Ólympíuleikana í stærðfræði sem haldnir verða í Shanghai í Kína. Lið Íslands skipa Daði Logason (MR), Eysteinn Daði Hjaltason (VÍ),
Jóakim Uni Arnaldarson (MR), Magnús Thor Holloway (MR), Matthías Pálmason
Skowronski (MR) og Patrek Ragnarsson (ETHs). Liðsstjóri er Atli Fannar
Franklín og fararstjóri er Matthías Andri Hrafnkelsson. Liðið fer til Kína í næstu viku og fær þar að taka þátt í þjálfunarbúðum á vegum kínversku ólympíunefndarinnar á undan leikunum sjálfum.
Kveðja,
stjórnin