Tregawött kvenna

3 views
Skip to first unread message

Hildur Lilliendahl

unread,
Jul 3, 2009, 11:23:39 AM7/3/09
to ljod...@googlegroups.com
Góðan dag, gott fólk.

Nýjasta hefti Tregawattanna í ritstjórn undirritaðrar leit dagsins sólarljós í dag. Það má nálgast hér: http://www.tregawott.net/konur/forsida.html en í því er að finna ljóð um konur og eftir konur, ritgerðir um konur og ljóð kvenna, sjónvarpsþátt um konur, þýðingar á verkum kvenna og meira að segja myndir af konum og allt hvað eina. Meðal höfunda efnis eru Anne Waldman, Dr. Usli, Kristín Ómarsdóttir, Halldóra K. Thoroddsen, undirrituð, Valerie Solanas, Sharon Mesmer, Magnús Sigurðsson, Gertrude Stein og fleiri og fleiri og fleiri.

Góða skemmtun!

Hildur Lilliendahl.




______________
Hildur Lilliendahl
Vesturbrún 2
104 Reykjavík

vs. 411 4706
gsm. 869 1884

Ásdís Brynjólfsdóttir

unread,
Jul 7, 2009, 1:44:00 PM7/7/09
to ljod...@googlegroups.com

Þarna eru um einhver mistök að ræða... vantar ekki ljóðið mitt Hildur? :)

Ég læt það fylgja með fyrir lesendur póstlistans. Það er óþarfi að refsa öðrum fyrir það hvað er stirt okkar á milli ;)

Umkomulaus

Einnusinni hlýddi ég á  mál viturs manns, mér fannst ég mæta vélbyssum, muldrandi byggingum og suðandi götuljósum „ætli lítið blóðflæði í hryggjarlið  útskýri þennan eilífa svima?" Ég reykti margar sígarettur, greindi ljóstauma eftir  Snorrabrautinni og hugleiddi hverjum vindhviðan væri ætluð ef þá nokkrum  og einhverstaðar hér dansaði mamma fyrst við pabba, ég tel mig nokkuð viss um það þó hér séu engin ummerki eftir skrall og má merkilegt heita að fólk gefi sér tíma í að kynnast hvor öðru þegar svo mikið annað er til að kljást við.

 Ef satt skal segja veit ég ekki hvað þessi vitri maður sagði.

 

Ásdís Brynjólfsdóttir           

 



2009/7/3 Hildur Lilliendahl <hildur.li...@gmail.com>

Hildur Lilliendahl

unread,
Jul 7, 2009, 2:11:15 PM7/7/09
to ljod...@googlegroups.com
Nei, það er rétt, Ásdís. Ég kunni ekki við að segja það en fyrst þú hefur staðið mig að verki við skipulagt einelti er víst best að ég komi hreint fram. Ég skildi ekki þetta ljóð og mér fannst það tilgerðarlegt. Þess vegna ákvað ég að svara bara póstinum þínum með þeim skilaboðum að ég myndi hafa þig með í blaðinu en hætta svo við það án þess að láta þig vita og vona að þú tækir ekki eftir því.

En ég kann þér innilegar þakkir fyrir framlagið og vona að þetta komi ekki niður á skáldskap þínum í framtíðinni, sem ég hlakka til að fylgjast með ef ég kemst hjá því að eiga í beinum samskiptum við þig á meðan.

Ástarkveðjur,
Hildur.
--

Ásdís Brynjólfsdóttir

unread,
Jul 7, 2009, 2:25:02 PM7/7/09
to ljod...@googlegroups.com
Ég ákvað að endurskrifa :)

Sunnudagsrúntur

Ég hjólaði út í apótek með pjakkinn minn, til að versla treo og mætti tuðandi eða skælandi byggingum sem litu út fyrir að vera glaðvakandi en samt engu sambandi hægt að ná við þær. Ég reykti margar sígarettur og greindi ljóstauma eftir Snorrabrautinni. Ætli lítið blóðflæði í hryggjarlið útskýri þennan eilífa svima?

Ásdís Brynjólfsdóttir           


2009/7/7 Hildur Lilliendahl <hildur.li...@gmail.com>

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages