Ný ljóðabók eftir Bjarna Bernharð: Blóm í byssukjafta græðginnar
Í hringrás
tómleika
flöktir ljósið
um verund
hverfull
sannleikur
spannar
sviðið
vegferð
í tímaleysi
markar
upphafið.
Í þessari bók má finna óræð, myndræn ljóð í knöppu formi, önnur opin og glaðvær, fáein hvassyrtari, en öll eru þau fáguð og bera jafnframt skýr einkenni höfundarins. Það vald sem Bjarni Bernharður hefur hér náð á markvissum, litríkum einfaldleika, skipar honum í röð merkari ljóðskálda samtímans.
Enginn skyldi reyna að útskýra galdur ljóðsins. En listin gerir okkur oft ljóst hið nýja og óvænta í því gamalkunna sem virtist útrætt og afgreitt – og að í hinu persónulega búa sammannleg verðmæti sem undirstrika hvað máli skiptir í lífinu – og hvers virði það er. Fátt er okkur mikilvægara.
Bókin fæst í bókaverslunum. Útgefandi er Ego útgáfan.
--
Útgefnar bækur höfundar:
Upp og ofan
1975
Hanafætur í regnboganum
1977
Blár pýramídi
1979
Ljóðför á hendur Grásteini
1979
Mauraborðið
1984
Rimma
1984
Stjörnunös
1986
Brjálaða plánetan
1988
Spor mín og vængir
2002
Náttglöpin
2003
Í sveigðu rými
2004
Ljósboginn
2005
Vélgölturinn
2006
Innviðir – Ljóð 1975-2006
2006
Blóm: The Shadowline – Klæðnaður fyrir miðnætti
2007
Kaleikur
2008
Blóm í byssukjafta græðginnar
2009