Við erum að ritstýra Sjón - núna

24 views
Skip to first unread message

arngr...@gmail.com

unread,
Jan 6, 2009, 8:27:34 AM1/6/09
to Ljóðlist
Ég finn mig knúinn, samvisku minnar vegna, að segja frá því að bók sem
Nýhil gaf út í desember síðastliðnum, Síðasta ljóðabók Sjóns, er
skrifuð af mér og Jóni Erni Loðmfjörð. Þetta geri ég vegna þess að það
er skylda mín gagnvart lesendum og fólkinu í landinu (og kannski Sjón)
að upplýsa um slík mál. Ég hef reynt að sannfæra sjálfan mig í meira
en mánuð um hið gagnstæða. Að best væri að gleyma þessu og þegja. Ég
hef hinsvegar ekki gleymt þessu atviki, og ég get ekki þagað yfir því
lengur. Ég tel það ekki vera ásættanlegt að einhverjir meðhöfundar
bókarinnar úti í bæ geti stöðvað eðlilegar yfirlýsingar um tilurð
þessarar bókar. Ég get ekki gerst sekur um að vera þátttakandi í
leynimakki og blekkingu í krafti frumleika á þessum síðustu og verstu
tímum.

Þann 4. desember síðastliðinn skrifuðum við bók uppúr
heildarljóðasafni Sjóns á skrifstofu í húsnæði við Fellsmúla [húsnúmer
hefur verið fjarlægt]. Jón Örn Loðmfjörð, ritstjóri bókarinnar, hafði
beðið mig um að vinna þetta verkefni með sér. Hann sagði aldrei af
hverju, en fljótlega tóku að renna á mig tvær grímur. Sumt af því sem
birtist í bókinni er skrifað af svo grímulausri rætni að ég gat ekki
trúað öðru en að Jón Örn væri að reyna að koma höggi á sér frægari
höfund. Væri hreint út sagt öfundsjúkur. Jón Örn svaraði fyrir sig með
uppdiktuðu svari á Ljóðlistarlistanum undir nafninu Sjón þar sem hann
prísaði bókina og mæltist til þess að allir sem keyptu sér ljóðasafn
Sjóns kipptu eintaki af Síðustu ljóðabókinni með. Það var og.

Ég hringdi strax í Jón og spurði hann hvaða skrípaleikur þetta væri
eiginlega, en þá sagði hann – haft eftir minni mínu: Kommon, þetta er
allt fyrir geimið maður, leikinn, frumleikann, framúrstefnuna! Ég
krafðist af Jóni að hann segði til sín – að við segðum til okkar – sem
höfundar bókarinnar. En það féll fyrir daufum eyrum. Jón Örn hafði
fundið bragðið af frægðinni og það var sætt.

Í sem fæstum orðum blöskraði mér. Svona fara þá vinaböndin. Eftir allt
sem við höfum gert saman, allt það álit sem ég hafði lagt á þennan
mann, sem ég hafði treyst. Hvernig gat hann gerst svo svívirðilegur?
Hermann Stefánsson hvatti til þess á Ljóðlistarlistanum að Sjón kærði
uppátækið, en vissi ekki að það var Jón sjálfur sem svaraði honum og
maldaði í móinn, sagði að hann ætti nú eftir að sjá verkið og svona.
Ef bara einhver hefði kært hefði þetta aldrei þurft að ganga svona
langt, einhver sómi verið enn í starfsheitinu rithöfundur, og þessi
afhjúpun hefði aldrei þurft að fara fram með þessum hætti.

En fyrst þetta mál allt hefur tekið þessa stefnu hlýtur krafan að vera
einföld: Að Jón Örn Loðmfjörð, meðhöfundur Síðustu ljóðabókar Sjóns,
taki ábyrgð á gerðum sínum og komi fram undir fullu nafni og gangist
við bók sinni. Ég veit það er við ofurefli að etja þar sem hann er
innviklaður í stjórn Nýhils, stærsta útgefanda ljóðabóka á Íslandi, og
að það er lítið mál að tortíma tiltölulega óþekktum höfundi á borð við
sjálfan mig. En ég þarf að standa á sannfæringu minni. Það verður ekki
unað við þetta lengur.

Krafan er sú að Jón Örn komi fram, og sú krafa stendur.


Arngrímur Vídalín,
Hafnarfirði aðfaranótt 6. janúar 2009.

Gísli Hvanndal

unread,
Jan 6, 2009, 8:33:24 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Iss. Stjórnin á eftir að stúta stráklingi eins og þér, ef þú hefur engar upptökur eða aðrar sannanir.

Atli Bollason

unread,
Jan 6, 2009, 8:41:24 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Hvað er að gerast?
Er þetta ekki einhvers konar grín? Uppdiktaður ágreiningur um eitthvað sem er mjög óljóst hvað er?

kv.
Atli

Kristian Guttesen

unread,
Jan 6, 2009, 8:42:38 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Auglýsingatrikk, sennilega.

Þann 6. janúar 2009 13:41, skrifaði Atli Bollason:
Hvað er að gerast?
Er þetta ekki einhvers konar grín? Uppdiktaður ágreiningur um eitthvað sem er mjög óljóst hvað er?

kv.
Atli

Þann 6. janúar 2009 13:33, skrifaði Gísli Hvanndal:
Iss. Stjórnin á eftir að stúta stráklingi eins og þér, ef þú hefur engar upptökur eða aðrar sannanir.

Birgitta Jonsdottir

unread,
Jan 6, 2009, 8:53:34 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
hljómar svolítið þannig - enda veit maður sjaldan hvar maður hefur þessa blessuðu spaðagosa skáldheima landsins

Birgitta Jonsdottir

Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692 8884

http://this.is/birgittahttp://this.is/poemshttp://birgitta.blog.is - http://tibet.blog.is -http://myspace.com/kamelljon

 

“The aim of education is the knowledge, not of facts, but of values.”

 William S. Burroughs 


Eiríkur Örn Norðdahl

unread,
Jan 6, 2009, 9:05:33 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Mig langar að stinga upp á að þeir verði nefndir spraðilbassar.

Það er svo fallegt orð, og ekki nærri nógu mikið notað.


--
www.norddahl.org
Eiríkur Örn Norðdahl
Fleminginkatu 9A 10
00530 Helsinki
Finland

Birgitta Jonsdottir

unread,
Jan 6, 2009, 9:14:23 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
hvað þýðir það Eiríkur? það er hljómfagurt með meiru.

Eiríkur Örn Norðdahl

unread,
Jan 6, 2009, 9:17:39 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
spraða·bassi, spraði·bassi, spraðil·bassi KK
    
æringi, fjörkálfur
    
óáreiðanlegur maður, spjátrungur
 Eiríkur Örn Norðdahl
 Fleminginkatu 9A 10
 00530 Helsinki
 Finland
  
 
 
 

 
Birgitta Jonsdottir

Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692 8884

http://this.is/birgitta - http://this.is/poems - http://birgitta.blog.is - http://tibet.blog.is -http://myspace.com/kamelljon



“The aim of education is the knowledge, not of facts, but of values.”
William S. Burroughs





Birgitta Jonsdottir

unread,
Jan 6, 2009, 9:25:33 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
lol
styð þetta fína orð
mun ég þá hefja notkun þess tafarlaust
takk fyrir að auka orðaforða minn
kk
b

Hermann Stefánsson

unread,
Jan 6, 2009, 9:34:39 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Ég hef lengi haft mikið dálæti á orðinu spraðibassi en hef aldrei séð það ritað með elli. Er það alveg rétt og ábyrg notkun á orðinu?

kær kveðja Hermann Stefánsson rithöfundur


--- On Tue, 1/6/09, Birgitta Jonsdottir <birgi...@gmail.com> wrote:

Eiríkur Örn Norðdahl

unread,
Jan 6, 2009, 9:36:02 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
jújú, og líka með a-i - spraðabassi.

Ég er sjálfur skotinn í L-inu.

Daníel Viðarsson

unread,
Jan 6, 2009, 9:44:00 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
sbr. "spraðibassi spratt hjá rassi" (höf. ókunnur)
kv
daníel

________________________________________
Frá: ljod...@googlegroups.com [ljod...@googlegroups.com] Fyrir h&#246;nd Eiríkur Örn Norðdahl [kolbrun...@gmail.com]
Sent: 6. janúar 2009 14:36
Viðtakandi: ljod...@googlegroups.com
Efni: [Ljóðlistarlistinn] Re: [Ljó›listarlistinn] Re: Vi› erum a› ritst‡ra Sjón - núna
Vinsamlega athugið að upplýsingar í tölvupósti þessum og viðhengi eru eingöngu ætlaðar þeim sem póstinum er beint til og gætu innihaldið upplýsingar sem eru trúnaðarmál. Sjá nánar: http://www.ru.is/trunadur

Please note that this e-mail and attachments are intended for the named addresses only and may contain information that is confidential and privileged. Further information:
http://www.ru.is/trunadur

Gísli Hvanndal

unread,
Jan 6, 2009, 10:04:34 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Ritmálssafn Orðabókar Háskólans á engin dæmi með l-i, þó því fari fjarri að það sé einhver dauðadómur. En hins vegar má þar finna orðmyndina 'spraðurbassi'. Þá orðmynd notaði Jóhannes úr Kötlum.
 
Gísli

Eiríkur Örn Norðdahl

unread,
Jan 6, 2009, 10:06:39 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Þetta orð er í næstu ljóðabók frá mér – sýna smá þolinmæði! Ég geri ráð fyrir að ritmálssafnið verði uppfært um leið og bókin er komin út.
>> -http://myspace.com/kamelljon
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>> "The aim of education is the knowledge,
>> not of facts, but of
>>>>>> values."
>>>>>>   William S. Burroughs
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>
>>>>>
>>>>>  --

>>>>>  Eiríkur Örn Norðdahl
>>>>>  Fleminginkatu 9A 10
>>>>>  00530 Helsinki
>>>>>  Finland
>>>>>
>>>>>
>>>>>
>>>>
>>>>
>>>>
>>>> Birgitta Jonsdottir
>>>>
>>>> Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692
>> 8884
>>>>
>>>> http://this.is/birgitta - http://this.is/poems -
>> -http://myspace.com/kamelljon
>>>>
>>>>
>>>>
>>>> "The aim of education is the knowledge, not of
>> facts, but of values."
>>>> William S. Burroughs
>>>>
>>>>
>>>>
>>>>
>>>>
>>>
>>>
>>> --
>>> Eiríkur Örn Norðdahl
>>> Fleminginkatu 9A 10
>>> 00530 Helsinki
>>> Finland
>>>
>>>>
>>
>> Birgitta Jonsdottir
>> Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692 8884
>> http://this.is/birgitta - http://this.is/poems - http://
>> -http://myspace.com/kamelljon
>>
>> "The aim of education is the knowledge, not of facts, but
>> of values."
>>   William S. Burroughs
>>
>>
>>
>
>
>
>
> >

--
Eiríkur Örn Norðdahl
Fleminginkatu 9A 10
00530 Helsinki
Finland




Vinsamlega athugið að upplýsingar í tölvupósti þessum og viðhengi eru eingöngu ætlaðar þeim sem póstinum er beint til og gætu innihaldið upplýsingar sem eru trúnaðarmál. Sjá nánar: http://www.ru.is/trunadur

Please note that this e-mail and attachments are intended for the named addresses only and may contain information that is confidential and privileged. Further information:
http://www.ru.is/trunadur




Gísli Hvanndal

unread,
Jan 6, 2009, 10:08:33 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Jájá, viti fólk! Beygingarlýsingin er afskaplega umburðarlynd og ligeglad hvað þetta orð varðar. Þar má finna hvorki meira né minna allar þær fjórar orðmyndir sem hafa verið nefndar, þmt spraðilbassann.
 
Gísli

Hildur Lilliendahl

unread,
Jan 6, 2009, 10:11:46 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Ég hef enga trú á öðru en að ritmálssafnið verði uppfært um leið og bókin hans Eiríks kemur úr prentun. Annað væri helber dónaskapur og vanvirðing.

Hil.
--
______________
Hildur Lilliendahl
Vesturbrún 2
104 Reykjavík

vs. 411 4706
gsm. 869 1884

Daníel Viðarsson

unread,
Jan 6, 2009, 11:59:59 AM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Verður mikið af "eddlum" í bókinni hjá þér Eiríkur?
Kanski er kominn tími á að fara að fækka stöfum í stafrófinu og sjá hvað við þurfum raunverulega marga stafi til skilnings.
kv
dv
________________________________
Frá: ljod...@googlegroups.com [ljod...@googlegroups.com] Fyrir hönd Hildur Lilliendahl [hildur.li...@gmail.com]
Sent: 6. janúar 2009 15:11
Viðtakandi: ljod...@googlegroups.com
Efni: [Ljóðlistarlistinn] Re: [Ljó›listarlistinn] Re: Vi› erum a› ritst‡ra Sjón - núna

Ég hef enga trú á öðru en að ritmálssafnið verði uppfært um leið og bókin hans Eiríks kemur úr prentun. Annað væri helber dónaskapur og vanvirðing.

Hil.

Þann 6. janúar 2009 15:08, skrifaði Gísli Hvanndal <gvan...@gmail.com<mailto:gvan...@gmail.com>>:
Jájá, viti fólk! Beygingarlýsingin er afskaplega umburðarlynd og ligeglad hvað þetta orð varðar. Þar má finna hvorki meira né minna allar þær fjórar orðmyndir sem hafa verið nefndar, þmt spraðilbassann.

Gísli

Þann 6. janúar 2009 23:06, skrifaði Eiríkur Örn Norðdahl <kolbrun...@gmail.com<mailto:kolbrun...@gmail.com>>:

Þetta orð er í næstu ljóðabók frá mér – sýna smá þolinmæði! Ég geri ráð fyrir að ritmálssafnið verði uppfært um leið og bókin er komin út.


On 1/6/09 5:04 PM, "Gísli Hvanndal" <gvan...@gmail.com<mailto:gvan...@gmail.com>> wrote:

Ritmálssafn Orðabókar Háskólans á engin dæmi með l-i, þó því fari fjarri að það sé einhver dauðadómur. En hins vegar má þar finna orðmyndina 'spraðurbassi'. Þá orðmynd notaði Jóhannes úr Kötlum.

Gísli

Þann 6. janúar 2009 22:44, skrifaði Daníel Viðarsson <dv...@ru.is<mailto:dv...@ru.is>>:

sbr. "spraðibassi spratt hjá rassi" (höf. ókunnur)
kv
daníel

________________________________________
Frá: ljod...@googlegroups.com<mailto:ljod...@googlegroups.com> [ljod...@googlegroups.com<mailto:ljod...@googlegroups.com>] Fyrir h&#246;nd Eiríkur Örn Norðdahl [kolbrun...@gmail.com<mailto:kolbrun...@gmail.com>]
Sent: 6. janúar 2009 14:36
Viðtakandi: ljod...@googlegroups.com<mailto:ljod...@googlegroups.com>
Efni: [Ljóðlistarlistinn] Re: [Ljó›listarlistinn] Re: Vi› erum a› ritst‡ra Sjón - núna

jújú, og líka með a-i - spraðabassi.

Ég er sjálfur skotinn í L-inu.


On 1/6/09 4:34 PM, "Hermann Stefánsson" <hermanns...@yahoo.com<mailto:hermanns...@yahoo.com>> wrote:

>
> Ég hef lengi haft mikið dálæti á orðinu spraðibassi en hef aldrei séð það
> ritað með elli. Er það alveg rétt og ábyrg notkun á orðinu?
>
> kær kveðja Hermann Stefánsson rithöfundur
>
>
> --- On Tue, 1/6/09, Birgitta Jonsdottir <birgi...@gmail.com<mailto:birgi...@gmail.com>> wrote:
>
>> From: Birgitta Jonsdottir <birgi...@gmail.com<mailto:birgi...@gmail.com>>
>> Subject: [Ljóðlistarlistinn] Re: [Ljó›listarlistinn] Re: Vi› erum a›
>> ritst‡ra Sjón - núna
>> To: ljod...@googlegroups.com<mailto:ljod...@googlegroups.com>
>> Date: Tuesday, January 6, 2009, 6:25 AM
>> lol
>> styð þetta fína orð
>> mun ég þá hefja notkun þess tafarlaust
>> takk fyrir að auka orðaforða minn
>> kk
>> b
>> On Jan 6, 2009, at 2:17 PM, Eiríkur Örn Norðdahl wrote:
>>
>>> spraða·bassi, spraði·bassi, spraðil·bassi KK
>>>
>>> æringi, fjörkálfur
>>>
>>> óáreiðanlegur maður, spjátrungur
>>>
>>>
>>>
>>> On 1/6/09 4:14 PM, "Birgitta Jonsdottir"
>> <birgi...@gmail.com<mailto:birgi...@gmail.com>>
>>> wrote:
>>>
>>>> hvað þýðir það Eiríkur? það er
>> hljómfagurt með meiru.
>>>>
>>>>
>>>> On Jan 6, 2009, at 2:05 PM, Eiríkur Örn
>> Norðdahl wrote:
>>>>
>>>>> Mig langar að stinga upp á að þeir verði
>> nefndir spraðilbassar.
>>>>>
>>>>> Það er svo fallegt orð, og ekki nærri
>> nógu mikið notað.
>>>>>
>>>>>
>>>>> On 1/6/09 3:53 PM, "Birgitta
>> Jonsdottir" <birgi...@gmail.com<mailto:birgi...@gmail.com>>
>> http://this.is/poems - http://birgitta.blog.is<http://birgitta.blog.is/> <http://birgitta.blog.is/><http://birgitta.blog.is/>
>>>>>> - http://tibet.blog.is<http://tibet.blog.is/> <http://tibet.blog.is/><http://tibet.blog.is/>
>> -http://myspace.com/kamelljon
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>> "The aim of education is the knowledge,
>> not of facts, but of
>>>>>> values."
>>>>>> William S. Burroughs
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>>
>>>>>
>>>>>
>>>>> --
>>>>> www.norddahl.org<http://www.norddahl.org/> <http://www.norddahl.org/><http://www.norddahl.org/>
>> <http://www.norddahl.org <http://www.norddahl.org/><UrlBlockedError.aspx> >

>>>>> Eiríkur Örn Norðdahl
>>>>> Fleminginkatu 9A 10
>>>>> 00530 Helsinki
>>>>> Finland
>>>>>
>>>>>
>>>>>
>>>>
>>>>
>>>>
>>>> Birgitta Jonsdottir
>>>>
>>>> Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692
>> 8884
>>>>
>>>> http://this.is/birgitta - http://this.is/poems -
>> http://birgitta.blog.is<http://birgitta.blog.is/> <http://birgitta.blog.is/><http://birgitta.blog.is/>
>>>> - http://tibet.blog.is<http://tibet.blog.is/> <http://tibet.blog.is/><http://tibet.blog.is/>
>> -http://myspace.com/kamelljon
>>>>
>>>>
>>>>
>>>> "The aim of education is the knowledge, not of
>> facts, but of values."
>>>> William S. Burroughs
>>>>
>>>>
>>>>
>>>>
>>>>
>>>
>>>
>>> --
>>> www.norddahl.org<http://www.norddahl.org/> <http://www.norddahl.org/><http://www.norddahl.org/>
>>> Eiríkur Örn Norðdahl
>>> Fleminginkatu 9A 10
>>> 00530 Helsinki
>>> Finland
>>>
>>>>
>>
>> Birgitta Jonsdottir
>> Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692 8884
>> http://this.is/birgitta - http://this.is/poems - http://
>> birgitta.blog.is<http://birgitta.blog.is/> <http://birgitta.blog.is/><http://birgitta.blog.is/> - http://tibet.blog.is<http://tibet.blog.is/> <http://tibet.blog.is/><http://tibet.blog.is/>
>> -http://myspace.com/kamelljon
>>
>> "The aim of education is the knowledge, not of facts, but
>> of values."
>> William S. Burroughs
>>
>>
>>
>
>
>
>
> >

--
www.norddahl.org<http://www.norddahl.org/> <http://www.norddahl.org/><http://www.norddahl.org/>
Eiríkur Örn Norðdahl
Fleminginkatu 9A 10
00530 Helsinki
Finland




Vinsamlega athugið að upplýsingar í tölvupósti þessum og viðhengi eru eingöngu ætlaðar þeim sem póstinum er beint til og gætu innihaldið upplýsingar sem eru trúnaðarmál. Sjá nánar: http://www.ru.is/trunadur

Please note that this e-mail and attachments are intended for the named addresses only and may contain information that is confidential and privileged. Further information:
http://www.ru.is/trunadur






--
www.norddahl.org<http://www.norddahl.org/>
Eiríkur Örn Norðdahl
Fleminginkatu 9A 10
00530 Helsinki
Finland








--
______________
Hildur Lilliendahl
Vesturbrún 2
104 Reykjavík

vs. 411 4706
gsm. 869 1884



________________________________

Eiríkur Örn Norðdahl

unread,
Jan 6, 2009, 12:25:15 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Það verða fleiri eddl en nokkru sinni fyrr - allt krökkt.
--
www.norddahl.org

arngr...@simnet.is

unread,
Jan 6, 2009, 2:49:06 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Jahá! Hvar eruð þið, ljóðskáldin, þegar að bókmenntunum er sótt? Þetta er ekkert grín þessi umræða hér sem hefur snúist upp í orðabókarskilgreiningar á fíflagangi, og þótt l sé í samheiti fíflsins ... (!) Hvað þarf til að hreyfa við steinhjörtum ljóðaheimsins? Ég er búinn að skrifa bréf eftir bréf og biðja ykkur að leggja bókmenntunum lið gegn svívirðilegum yfirgangi og fíflaskap Jóns. Ef einhver hér er spraðil-/abassi, Eiríkur, þá er það Jón Örn Loðmfjörð!

Hef ég nokkru sinni logið fyrri á þessum póstlista? Né þá að nokkru ykkar hinna, nokkursstaðar? Er þá nokkur ástæða til að ætla að ég geri það núna? Auglýsingatrikk sagði einhver! Spyrjið sjálf ykkur bara að því hvort þetta hafi virkað sem auglýsingatrikk - öh, nei. Það væri einum of auðvelt að sjá í gegnum, svo ég hlýt að vera að segja satt! Myndi einhver ljúga svo augljósri þvælu?

Og hvar ert þú, Jón, þegar vinir þínir hamast við að hunsa neyðaróp frjálsra bókmennta hér á vefnum? HVAR FELUR NAÐRAN SIG ÞEGAR BARÁTTAN UM BÓKMENNTIRNAR FER FRAM?! Þú heldur kannski að þú getir falið þig? Þessi póstlisti fær ekki lengur að fjalla um dauð ljóðskáld og bragform sonnettunnar (í alvöru, get a grip) fyrr en þú kemur fram.

Ég fer fram á svör og það strax!!

- A.


----- Upphaflegt skeyti -----
Frá: Eir=?UTF-8?B?w60=?=kur Örn Nor=?UTF-8?B?w7A=?=dahl <kolbrun...@gmail.com>
Til: ljod...@googlegroups.com
Sent: Tue, 6 Jan 2009 17:25:15 +0000 (GMT)
Efni: Re: SV: [Ljóðlistarlistinn] Re: [Ljó›listarlistinn] Re: Vi› erum a› ritst‡ra Sjón - núna

Ingi Björn Guðnason

unread,
Jan 6, 2009, 2:54:52 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Þetta er farið að minna ansi mikið á söguna af drengnum sem hrópaði: úlfur úlfur!

Með ævintýralegri kveðju,
Ingi Björn

Eiríkur Örn Norðdahl

unread,
Jan 6, 2009, 3:17:28 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Bókmenntahóx eru góð og gild list - og Síðasta ljóðabók Sjóns er skemmtilegt
rit - en eitthvað er spraðilbassinn vanstilltur í þessum eftirleik.

Kann annars einhver að stilla spraðilbassa?

Hermann Stefánsson

unread,
Jan 6, 2009, 3:19:53 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Mér finnst nú aðallega ósköp lítið úthald í þessum spraði(l)bössum nútímans, Byron lávarður fór með öll sín dulnefni í gröfina, Jón Espólín lét áratugi njóta Íslendingasagnafölsunar sinnar, Haraldur C. Geirsson býr enn í Vesturheimi.

Svo kaupi ég ekki þessi ættarnöfn, ég meina kommon!

kær kveðja
Hermann Stefánsson


--- On Tue, 1/6/09, Ingi Björn Guðnason <in...@hsvest.is> wrote:
> Fyrir hönd
> >>> blöskraði mér. Svona fara þá vinaböndin..

Eiríkur Örn Norðdahl

unread,
Jan 6, 2009, 3:23:37 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Ekkert má maður nú heita lengur!


On 1/6/09 10:19 PM, "Hermann Stefánsson" <hermanns...@yahoo.com>
wrote:

>

Kári Tulinius

unread,
Jan 6, 2009, 3:24:08 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Já... fólk með ættarnöfn eru ekki alvöru Íslendingar.

2009/1/6 Hermann Stefánsson <hermanns...@yahoo.com>:

Hildur Lilliendahl

unread,
Jan 6, 2009, 3:27:16 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Já, þetta eru örugglega slappir spraðilbassar. En þetta með ættarnöfnin er skemmtilegt. Eru það Loðmfjörð og Vídalín sem þú kaupir ekki? 

Og hvernig kaupir maður ekki nafn? Áttu við að þú efist um að foreldrar spraðilbassanna hafi valið þeim þessi nöfn/látið þau ganga áfram til barnanna? Ef já, finnst þér það rýra á einhvern hátt gildi nafnanna?

Eða kaupirðu ekki Norðdahl eða Lilliendahl heldur? Ég er orðin ansi áhyggjufull, hérna. Úff, ha.

-Lill.

Hermann Stefánsson

unread,
Jan 6, 2009, 3:33:37 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Norðdahl, Lilliendahl, Loðmfjörð, Vídalín ... ég meina það hefur aldrei hvarflað að mér að þetta fólk sé til!

Getiði ekki einu sinni valið ykkur trúleg dulnefni, bara Jónsson eða eitthvað?

öhömm, no offense :)
kær kveðja Hermann Stefánsson


--- On Tue, 1/6/09, Hildur Lilliendahl <hildur.li...@gmail.com> wrote:

Sjon Sigurdsson

unread,
Jan 6, 2009, 3:34:18 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Ég vil minna á að Sjón er Geirdal ...

Lommi
----------------------------------------------
SJÓN - Sigurjón B. Sigurdsson
Melhaga 2
107 Reykjavik
Island/Iceland
----------------------------------------------



Hildur Lilliendahl

unread,
Jan 6, 2009, 3:40:18 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Ég kalla það illskiljanlega yfirsjón af hálfu Loðmfjörðs, Vídalíns, Túliníusar og Guttesens að hafa ekki valið sér ættarnöfn sem enda á dal eða dahl.

Og none taken.

Hermann Stefánsson

unread,
Jan 6, 2009, 3:41:16 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Shit

Valur Gunnarsson, ertu þarna ennþá?

kær kveðja Hermann Stefánsson rithöfundur


--- On Tue, 1/6/09, Sjon Sigurdsson <sj...@bjartur.is> wrote:

Kári Tulinius

unread,
Jan 6, 2009, 3:46:14 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Já, eru það bara þið Ingi Björn Guðnason sem eruð eftir? Bjarni frá
Vogi hlýtur að snarsnúast í gröfinni.

2009/1/6 Hermann Stefánsson <hermanns...@yahoo.com>:

arngr...@simnet.is

unread,
Jan 6, 2009, 3:47:03 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Vidahl er of líkt Gore Vidal, fröken Lilliendahl! Og hvar er Loðmdahl??


----- Upphaflegt skeyti -----
Frá: Hermann Stefánsson <hermanns...@yahoo.com>
Til: ljod...@googlegroups.com
Sent: Tue, 6 Jan 2009 20:41:16 +0000 (GMT)

Hildur Lilliendahl

unread,
Jan 6, 2009, 3:50:11 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Loðmdahl er upptekinn við að dikta upp ný netföng (og konsekventlí tölvupósta) fyrir hönd Sjóndal. Hann má ekki vera að þessum óábyrga spraðilbassahætti.

Kristian Guttesen

unread,
Jan 6, 2009, 4:28:14 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Allt snýst þetta um að valda usla. Vittu til.
 

Ljóð um usla
 
Rjúpur gera usla !
Val Obama á innvígslustjóra veldur usla
Snjór veldur usla
Berrösuð Jessica Simpson veldur usla
 
Rjúpur gera usla
Ike veldur usla
Vísir.is veldur usla
Skríll gerir usla
 
Ekki gera ekki neitt
Gerðu allt
Fljúgandi elgur veldur usla
Frumleg fjöðrun Renault veldur usla

Þann 6. janúar 2009 20:47, skrifaði arngrimurv:

Vidahl er of líkt Gore Vidal, fröken Lilliendahl! Og hvar er Loðmdahl??


----- Upphaflegt skeyti -----
Frá: Hermann Stefánsson
Til: ljodlist

Sent: Tue, 6 Jan 2009 20:41:16 +0000 (GMT)
Efni: Re: SV: [Ljóðlistarlistinn] Re: [Ljó›listarlistinn] Re: Vi› erum a› ritst‡ra Sjón - núna

Shit

Valur Gunnarsson, ertu þarna ennþá?

kær kveðja  Hermann Stefánsson  rithöfundur


--- On Tue, 1/6/09, Sjon Sigurdsson wrote:
> > >:

> >
> > Mér finnst nú aðallega ósköp lítið úthald í
> þessum spraði(l)bössum
> > nútímans, Byron lávarður fór með öll sín
> dulnefni í gröfina, Jón
> > Espólín lét áratugi njóta
> Íslendingasagnafölsunar sinnar, Haraldur
> > C. Geirsson býr enn í Vesturheimi.
> >
> > Svo kaupi ég ekki þessi ættarnöfn, ég meina
> kommon!
> >
> > kær kveðja
> > Hermann Stefánsson
> >
> >
> > --- On Tue, 1/6/09, Ingi Björn Guðnason
> > wrote:
> >
> > > From: Ingi Björn Guðnason
> >
> > > Subject: RE: SV: [Ljóðlistarlistinn] Re:
> [Ljó›listarlistinn] Re:
> > Vi› erum a› ritst‡ra Sjón - núna
> > > To: ljodlist
> > > kolbrunarskald
> > > Til: ljodlist

Guðmundur Einar Sigurðarson

unread,
Jan 6, 2009, 5:54:52 PM1/6/09
to ljod...@googlegroups.com
Þetta er fullkomlega óskiljanlegt? Getur einhver útskýrt þetta?

2009/1/6 Birgitta Jonsdottir <birgi...@gmail.com>
Í sem fæstum orðum blöskraði mér. Svona fara þá vinaböndin. Eftir allt

sem við höfum gert saman, allt það álit sem ég hafði lagt á þennan
 mann, sem ég hafði treyst. Hvernig gat hann gerst svo svívirðilegur?
Hermann Stefánsson hvatti til þess á Ljóðlistarlistanum að Sjón kærði
uppátækið, en vissi ekki að það var Jón sjálfur sem svaraði honum og
maldaði í móinn, sagði að hann ætti nú eftir að sjá verkið og svona.
 Ef bara einhver hefði kært hefði þetta aldrei þurft að ganga svona
langt, einhver sómi verið enn í starfsheitinu rithöfundur, og þessi
afhjúpun hefði aldrei þurft að fara fram með þessum hætti.

En fyrst þetta mál allt hefur tekið þessa stefnu hlýtur krafan að vera
 einföld: Að Jón Örn Loðmfjörð, meðhöfundur Síðustu ljóðabókar Sjóns,
taki ábyrgð á gerðum sínum og komi fram undir fullu nafni og gangist
við bók sinni. Ég veit það er við ofurefli að etja þar sem hann er
innviklaður í stjórn Nýhils, stærsta útgefanda ljóðabóka á Íslandi, og
 að það er lítið mál að tortíma tiltölulega óþekktum höfundi á borð við
sjálfan mig. En ég þarf að standa á sannfæringu minni. Það verður ekki
unað við þetta lengur.

Krafan er sú að Jón Örn komi fram, og sú krafa stendur.
 

Arngrímur Vídalín,
Hafnarfirði aðfaranótt 6. janúar 2009.
Birgitta Jonsdottir

Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692 8884

"The aim of education is the knowledge, not of facts, but of values."
William S. Burroughs






Eiríkur Örn Norðdahl
Fleminginkatu 9A 10
00530 Helsinki
Finland

Birgitta Jonsdottir

Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692 8884

arngr...@simnet.is

unread,
Jan 7, 2009, 3:21:10 PM1/7/09
to ljod...@googlegroups.com
Jæa, þetta fór fyrir ofan garð og neðan, vona að eftirfarandi skýri þetta út fyrir Guðmundi Einari.

Við Jón Örn skrifuðum bók sem heitir Síðasta ljóðabók Sjóns. Hún er endurvinnsla á ljóðum Sjóns. En allir gjörningar þurfa að enda einhvern tíma og mér fannst réttast - þar sem bókin rataði í engan þeirra fjölmiðla sem hún var send á, og engin umræða skapaðist um hana neinstaðar annarsstaðar en hér - að klára málið.

Jón Örn vildi hinsvegar halda þessu til streitu í einhvern tíma enn og því sendi ég inn þessa yfirlýsingu, sem var augljóst grín, í von um tvennt: annarsvegar að enginn tryði því að ég hefði verið partur af gjörningnum og það skapaði einhverja umræðu - hvort sem væri á sambærilegum bullnótum eða ekki - og að fíflaskapurinn myndi knýja Jón til að annaðhvort gangast við bókinni eða í það minnsta afneita henni.

En það virðist enginn hafa haft minnsta áhuga á þessu, og það sýnir enn betur að það var tímabært að enda gjörninginn. Eins stoltur og ég er af þessari bók - og við Jón báðir eftir því sem ég kemst næst.

Þess má svosem geta líka að bæði bréfin sem ég sendi á póstlistann voru með sínum hætti augljósar endurvinnslur nýlegra texta.

Bestu kveðjur,
Arngrímur



----- Upphaflegt skeyti -----
Frá: Guðmundur Einar Sigurðarson <gudm....@gmail.com>
Til: ljod...@googlegroups.com
Sent: Tue, 6 Jan 2009 22:54:52 +0000 (GMT)
Efni: [Ljóðlistarlistinn] Re: Við erum að ritstýra Sjón - núna
> *Birgitta Jonsdottir
> *
> Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692 8884
>
> *http://this.is/birgitta - http://this.is/poems - http://birgitta.blog.is-
> http://tibet.blog.is -http://myspace.com/kamelljon
> *
> *
> *
> *"The aim of education is the knowledge, not of facts, but of values."
> * William S. Burroughs
>
>
>
>
>
>
>
> --
> www.norddahl.org
> Eiríkur Örn Norðdahl
> Fleminginkatu 9A 10
> 00530 Helsinki
> Finland
>
>
>
>
> *Birgitta Jonsdottir*
>
> Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692 8884
>
> *http://this.is/birgitta - http://this.is/poems - http://birgitta.blog.is-
> http://tibet.blog.is -http://myspace.com/kamelljon*
>
> * *
> *"The aim of education is the knowledge, not of facts, but of values."*
>
> William S. Burroughs
>
>
> >
>



Haukur SM

unread,
Jan 8, 2009, 8:10:15 AM1/8/09
to Ljóðlist
Sjitt, annars, hvað það eru margir hérna með eftirnöfn.

Sjálfum hefur mér alltaf dreymt um að vera Blöndal. Ahhh...

On Jan 6, 8:27 pm, "Hildur Lilliendahl" <hildur.lilliend...@gmail.com>
wrote:
> Já, þetta eru örugglega slappir spraðilbassar. En þetta með ættarnöfnin er
> skemmtilegt. Eru það Loðmfjörð og Vídalín sem þú kaupir ekki?
>
> Og hvernig kaupir maður ekki nafn? Áttu við að þú efist um að foreldrar
> spraðilbassanna hafi valið þeim þessi nöfn/látið þau ganga áfram til
> barnanna? Ef já, finnst þér það rýra á einhvern hátt gildi nafnanna?
> Eða kaupirðu ekki Norðdahl eða Lilliendahl heldur? Ég er orðin ansi
> áhyggjufull, hérna. Úff, ha.
>
> -Lill.
>
> Þann 6. janúar 2009 20:19, skrifaði Hermann Stefánsson <
> hermannstefans...@yahoo.com>:
>
>
>
> > Mér finnst nú aðallega ósköp lítið úthald í þessum spraði(l)bössum
> > nútímans, Byron lávarður fór með öll sín dulnefni í gröfina, Jón Espólín lét
> > áratugi njóta Íslendingasagnafölsunar sinnar, Haraldur C. Geirsson býr enn í
> > Vesturheimi.
>
> > Svo kaupi ég ekki þessi ættarnöfn, ég meina kommon!
>
> > kær kveðja
> > Hermann Stefánsson
>
> > --- On Tue, 1/6/09, Ingi Björn Guðnason <i...@hsvest.is> wrote:
> > > <kolbrunarsk...@gmail.com>
> > > Til: ljod...@googlegroups.com
> > > Sent: Tue, 6 Jan 2009 17:25:15 +0000 (GMT)
> > > Efni: Re: SV: [Ljóðlistarlistinn] Re:
> > > [Ljó›listarlistinn] Re: Vi› erum a› ritst‡ra Sjón
> > > - núna
>
> > > Það verða fleiri eddl en nokkru sinni fyrr - allt
> > > krökkt.
>
> > > On 1/6/09 6:59 PM, "Daníel Viðarsson"
> > > <d...@ru.is> wrote:
>
> > > > Verður mikið af "eddlum" í bókinni hjá
> > > þér Eiríkur?
> > > > Kanski er kominn tími á að fara að fækka stöfum
> > > í stafrófinu og sjá hvað við
> > > > þurfum raunverulega marga stafi til skilnings.
> > > > kv
> > > > dv
> > > > ________________________________
> > > > Frá: ljod...@googlegroups.com
> > > [ljod...@googlegroups.com] Fyrir hönd Hildur
> > > > Lilliendahl [hildur.lilliend...@gmail.com]
> > > > Sent: 6. janúar 2009 15:11
> > > > Viðtakandi: ljod...@googlegroups.com
> > > > Efni: [Ljóðlistarlistinn] Re: [Ljó›listarlistinn]
> > > Re: Vi› erum a› ritst‡ra
> > > > Sjón - núna
>
> > > > Ég hef enga trú á öðru en að ritmálssafnið
> > > verði uppfært um leið og bókin hans
> > > > Eiríks kemur úr prentun. Annað væri helber
> > > dónaskapur og vanvirðing.
>
> > > > Hil.
>
> > > > Þann 6. janúar 2009 15:08, skrifaði Gísli Hvanndal
>
> > > <gvannd...@gmail.com<mailto:gvannd...@gmail.com>>:
> > > > Jájá, viti fólk! Beygingarlýsingin er afskaplega
> > > umburðarlynd og ligeglad hvað
> > > > þetta orð varðar. Þar má finna hvorki meira né
> > > minna allar þær fjórar
> > > > orðmyndir sem hafa verið nefndar, þmt
> > > spraðilbassann.
>
> > > > Gísli
>
> > > > Þann 6. janúar 2009 23:06, skrifaði Eiríkur Örn
> > > Norðdahl
>
> > > <kolbrunarsk...@gmail.com<mailto:kolbrunarsk...@gmail.com>>:
>
> > > > Þetta orð er í næstu ljóðabók frá mér –
> > > sýna smá þolinmæði! Ég geri ráð fyrir
> > > > að ritmálssafnið verði uppfært um leið og bókin
> > > er komin út.
>
> > > > On 1/6/09 5:04 PM, "Gísli Hvanndal"
>
> > > <gvannd...@gmail.com<mailto:gvannd...@gmail.com>>
> > > wrote:
>
> > > > Ritmálssafn Orðabókar Háskólans á engin dæmi
> > > með l-i, þó því fari fjarri að
> > > > það sé einhver dauðadómur. En hins vegar má þar
> > > finna orðmyndina
> > > > 'spraðurbassi'. Þá orðmynd notaði
> > > Jóhannes úr Kötlum.
>
> > > > Gísli
>
> > > > Þann 6. janúar 2009 22:44, skrifaði Daníel
> > > Viðarsson
> > > > <d...@ru.is<mailto:d...@ru.is>>:
>
> > > > sbr. "spraðibassi spratt hjá rassi" (höf.
> > > ókunnur)
> > > > kv
> > > > daníel
>
> > > > ________________________________________
> > > > Frá:
> > > ljod...@googlegroups.com<mailto:ljod...@googlegroups.com>
>
> > > [ljod...@googlegroups.com<mailto:ljod...@googlegroups.com>]
> > > Fyrir hönd
> > > > Eiríkur Örn Norðdahl
>
> > > [kolbrunarsk...@gmail.com<mailto:kolbrunarsk...@gmail.com>]
> > > > Sent: 6. janúar 2009 14:36
> > > > Viðtakandi:
> > > ljod...@googlegroups.com<mailto:ljod...@googlegroups.com>
> > > > Efni: [Ljóðlistarlistinn] Re: [Ljó›listarlistinn]
> > > Re: Vi›  erum a› ritst‡ra
> > > > Sjón - núna
>
> > > > jújú, og líka með a-i - spraðabassi.
>
> > > > Ég er sjálfur skotinn í L-inu.
>
> > > > On 1/6/09 4:34 PM, "Hermann Stefánsson"
>
> > > <hermannstefans...@yahoo.com<mailto:hermannstefans...@yahoo.com>>
> > > wrote:
>
> > > >> Ég hef lengi haft mikið dálæti á orðinu
> > > spraðibassi en hef aldrei séð það
> > > >> ritað með elli. Er það alveg rétt og ábyrg
> > > notkun á orðinu?
>
> > > >> kær kveðja  Hermann Stefánsson  rithöfundur
>
> > > >> --- On Tue, 1/6/09, Birgitta Jonsdottir
>
> > > <birgitta...@gmail.com<mailto:birgitta...@gmail.com>>
> > > wrote:
>
> > > >>> From: Birgitta Jonsdottir
>
> > > <birgitta...@gmail.com<mailto:birgitta...@gmail.com>>
> > > >>> Subject: [Ljóðlistarlistinn] Re:
> > > [Ljó›listarlistinn] Re: Vi›  erum a›
> > > >>> ritst‡ra Sjón - núna
> > > >>> To:
> > > ljod...@googlegroups.com<mailto:ljod...@googlegroups.com>
> > > >>> Date: Tuesday, January 6, 2009, 6:25 AM
> > > >>> lol
> > > >>> styð þetta fína orð
> > > >>> mun ég þá hefja notkun þess tafarlaust
> > > >>> takk fyrir að auka orðaforða minn
> > > >>> kk
> > > >>> b
> > > >>> On Jan 6, 2009, at 2:17 PM, Eiríkur Örn
> > > Norðdahl wrote:
>
> > > >>>> spraða·bassi, spraði·bassi,
> > > spraðil·bassi KK
>
> > > >>>> æringi, fjörkálfur
>
> > > >>>> óáreiðanlegur maður, spjátrungur
>
> > > >>>> On 1/6/09 4:14 PM, "Birgitta
> > > Jonsdottir"
>
> > > <birgitta...@gmail.com<mailto:birgitta...@gmail.com>>
> > > >>>> wrote:
>
> > > >>>>> hvað þýðir það Eiríkur? það
> > > er
> > > >>> hljómfagurt með meiru.
>
> > > >>>>> On Jan 6, 2009, at 2:05 PM, Eiríkur
> > > Örn
> > > >>> Norðdahl wrote:
>
> > > >>>>>> Mig langar að stinga upp á að
> > > þeir verði
> > > >>> nefndir spraðilbassar.
>
> > > >>>>>>  Það er svo fallegt orð, og
> > > ekki nærri
> > > >>> nógu mikið notað.
>
> > > >>>>>>  On 1/6/09 3:53 PM, "Birgitta
> > > >>> Jonsdottir"
> > > <birgitta...@gmail.com<mailto:birgitta...@gmail.com>>
> ...
>
> read more »

Thorunn Valdimarsdottir

unread,
Jan 8, 2009, 8:22:25 AM1/8/09
to ljod...@googlegroups.com
Það getur hjálpað að gefa hinum ýmsu persónuleikum sínum nafn.
Ég er Trölldal og Montval ... að ógleymdum Þorvaldi.

Birgitta Jonsdottir

unread,
Jan 8, 2009, 10:30:38 AM1/8/09
to ljod...@googlegroups.com

ég gæti verið með Hirt en það hljómar eins og Hurt á erlendri tungu
annars finnst mér Jónsdóttir vera langflottasta eftirnafnið hér
svo kom kona frá útlöndum sem nuddar tær og skrifar um það bækur og stal nafninu mínu í heild sinni (var meira að segja í framboði fyrir xD)
mér varð ekki um sel - íhuga að fá mér eftirnafn vegna þess

mér finnst annars Trölldal vera flott
í hvaða ættbálki þarf maður að vera til að fá nota það?

kk
birgitta jónsdóttir ekki klasen

Birgitta Jonsdottir

Birkimelur 8, 107 Reykjavik, Iceland, tel: 354 692 8884

http://this.is/birgittahttp://this.is/poemshttp://birgitta.blog.is - http://tibet.blog.is -http://myspace.com/kamelljon

 

“The aim of education is the knowledge, not of facts, but of values.”

 William S. Burroughs 


Eiríkur Örn Norðdahl

unread,
Jan 8, 2009, 10:38:01 AM1/8/09
to ljod...@googlegroups.com
Ég er raunar Hübner í móðurætt, gæti skellt því við og gerst Hübner-Norðdahl eins og sannkallaður aðall. Og bætt við frúnni og gerst Eiríkur Örn Veikolainen-Widell-Hübner-Norðdahl Herdísarson Hrafnsson fyrsti.  

En svo fær maður ekki nema brot af þessu skráð í þjóðskrá, svo það er kannski ekki til neins.

Kári Tulinius

unread,
Jan 8, 2009, 10:41:37 AM1/8/09
to ljod...@googlegroups.com
Mér finnst að þú ættir að breyta nafni þínu í Eiríkur Örn
Veikolainen-Widell-Hübner-Norðdahl Herdísarson Hrafnsson annar.

Svo þegar fólk spyr: Ha, annar?

Þá geturðu sagt: Já, ég er annar.



Þetta er obbosslega fyndið þegar maður er jetlagged frá helvíti.

2009/1/8 Eiríkur Örn Norðdahl <kolbrun...@gmail.com>:

Halldór Marteinsson

unread,
Jan 8, 2009, 11:37:42 AM1/8/09
to ljod...@googlegroups.com
Toppar samt ekkert Johann Gambolputty de von Ausfern -schplenden -schlitter -crasscrenbon -fried -digger -dangle -dungle -burstein -von -knacker -thrasher -apple -banger -horowitz -ticolensic -grander -knotty -spelltinkle -grandlich -grumblemeyer -spelterwasser -kürstlich -himbleeisen -bahnwagen -gutenabend -bitte -eine -nürnburger -bratwustle -gerspurten -mit -zweimache -luber -hundsfut -gumberaber -shönendanker -kalbsfleisch -mittler -raucher von Hautkopft of Ulm þegar kemur að eftirnöfnum.

En hann var reyndar ekki ljóðskáld heldur tónskáld þannig að ég er kannski kominn heldur út fyrir efnið hér...

2009/1/8 Kári Tulinius <katt...@gmail.com>

Thorunn Valdimarsdottir

unread,
Jan 8, 2009, 1:41:47 PM1/8/09
to ljod...@googlegroups.com

Tröllkonu ættbálki, en skessur koma af öllum stærðum, litlar skessur eru voðalegar. Sum tröll stækkuðu í landnámsbátunum á leiðinni hingað og fylla fjöll. Lísa í Undralandi, attack of the 50 foot woman, gaman, ég elska stærðar rennerí. Dalurinn er við hliðina á Norðurdal í Tristansfirði í Arnarfirði, Trölladalur alltsvo.

 


Draumey Aradóttir

unread,
Jan 8, 2009, 5:48:21 PM1/8/09
to ljod...@googlegroups.com
Í Svíaríki er öllum heimilt að skálda sér nýtt eftirnafn hvenær sem er, hvort heldur af tilefni giftingar eða bara leikgleði ímyndunaraflsins. Nú eða af leiða yfir eigin eftirnafni.

Þegar ég gifti mig Svía hér um árið afþakkaði ég pent að taka upp eftirnafnið (hans) Nyström á eftir mínu ljómandi trausta og vængþétta eftirnafni Aradóttir. Fannst alveg nóg að vera að upplifa nýja strauma í lífi mínu með flutningi mínum yfir hafið og nýju tungumáli og nýjum drykkjuvísum og ekki síst nýrri og óvanalegri dagbókarnotkun (skipulagi tímans eitt ár fram í tímann). Fannst ekki að ég þyrfti að hengja þessa nýju strauma inn í nafnið mitt líka. Stakk hins vegar upp á því við manninn minn að hann tæki mitt eftirnafn og nefndi sig þaðan í frá Lars Aradóttir. Hann af þakkaði líka frekar pent.

Svo hér með auglýsi ég laust til notkunar eftirnafnið Nyström ef einhver situr t.d. niðurólaður í sömu gömlu sprænunni en langar að synda í nýjum straumum.
Njótið í botn!  ;-)
Draumey Aradóttir

- - - - -

2009/1/8 Thorunn Valdimarsdottir <thor...@islandia.is>
...

[Message clipped]  



--
__________________________________
Draumey Aradóttir
Blåtungavägen 4
224 75 Lund, SVERIGE

tel:     +46 46 121262
mobil: +46 708 448813
e-post: dra...@gmail.com
hemsida: www.draumey.net

Thorunn Valdimarsdottir

unread,
Jan 9, 2009, 6:58:40 AM1/9/09
to ljod...@googlegroups.com

Nýstraumur fer um Draumey Arnarins, en er of mörg megawött til að hafa í nafni, ég skil.

Eyjan vill nýstraum nærri sér en halda sínum vötnum líka.

 

Þessi siður að klína eiginmannsnafni á konu tilheyrir réttar- og þjóðfélagsskipan

 sem breiddist norður frá karlveldum við Miðjarðarhafið.

 Sem betur fer hefur frelsið sem blundaði í fjallafólki frá Kákasus

(sem lagði undir sig álfuna á þjóðflutningatíma) brotist í gegn og vill um allan heiminn.

 

Að vera poetessa með nýstraum og heita Draumey.

Þú ert bara dásamleg.

 


Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir

unread,
Jan 9, 2009, 7:15:32 AM1/9/09
to ljod...@googlegroups.com
Góðan daginn.
 
Viltu gjöra svo vel að taka mína e-mail addressu af ljóðalistanum geli...@hotmail.com
 
Kveðja,
Guðbjörg Elín.



Eiríkur Örn Norðdahl

unread,
Jan 9, 2009, 7:26:38 AM1/9/09
to ljod...@googlegroups.com
Enn og aftur skal vakinn athygli á því að leiðbeiningar til að má nafn sitt af listanum má finna neðst í hverjum pósti. Það setur enginn neinn á þennan lista nema maður sjálfur, og maður sjálfur ber ábyrgð á að fjarlægja nafn sitt.


On 1/9/09 2:15 PM, "Guðbjörg Elín Heiðarsdóttir" <geli...@hotmail.com> wrote:


Viljið þér gerast svo góð/ur að benda öðrum á listann er handhægast og formálalausast að gera það hér: http://tregawott.net/2008/10/12/ljodlistarlistinn/
 

Ef svo illa vill til að þér viljið nafn yðar máð af listanum skulið þér senda skilaboð á ljodlist+u...@googlegroups.com

jón örn

unread,
Jan 9, 2009, 10:46:12 AM1/9/09
to ljod...@googlegroups.com
Æ Arngrímur þetta er nú meira ruglið. Ég gæti farið að skrifa upp öll
þau samtöl sem við höfum átt undanfarið um þetta mál en ég þreyti ekki
lesendur með miklu máli um svo ógnarlítið efni að öðru leyti en þessu:
Nafnleysi er gríðarlega mikilvægt lýðræðislegt tæki í umræðum í
samtímanum, hvort sem er til að koma sögu á hreyfingu eða leitast við
að greina samtímann á netinu. Það er vandmeðfarið og að sönnu er mest
um píp og fjas og sóðaskap og mjög oft yfirgengilegan. En það er ekki
frjó afstaða að hneykslast, sjaldnast hugsandi og í reynd hugrakkt að
taka sér stöðu umvandarans og aldrei skapandi að fjargviðrast.
Rithöfundar hafa í rás sögunnar tekið með ýmsu móti þátt í samtíma
sínum og ekki skirrst við nafnleysi ef þeim hefur boðið svo við að
horfa. Póstmódernismi hefur í þessu samhengi litla merkingu, enda
löngu ofnotað hugtak sem hefur ekki innihald nema sem skammaryrði. Ég
hygg að margt sé brýnna nú um stundir en skammir og argaþras, við
ættum í það minnsta að geta dundað okkur við eitthvað skemmtilegra.

kv.
lommi

2009/1/7 arngr...@simnet.is <arngr...@simnet.is>:

Hermann Stefánsson

unread,
Jan 9, 2009, 12:17:29 PM1/9/09
to ljod...@googlegroups.com
Þetta er eins og talað úr mínu hjarta!

En kæri Valur Gunnarsson, ég hef komist að því að við erum nokkurn veginn alveg einir á þessum póstlista, aðrir eru meira og minna bara svona Bot sem svo er kallað, tölvuforrit sem velja sér kúnstug ættarnöfn að dulnefni og senda átomateruð skilaboð sem þau pikka einhvers staðar upp. Svona vélar verið mjög frjóar og skemmtilegar þegar sá gállinn er á þeim, þær vinna úr langri hefð remixins þótt þau kunni að virka framandi í fyrstu. Estética do Plagio var þetta kallað í Brasilíu fyrir allnokkrum árum.

Á hinn bóginn langaði mig að benda þér á annan ljóðapóstlista sem ég er á og heitir Poetas del mundo eða Skáld heimsins og má finna upplýsingar um hann á slóðinni http://www.poetasdelmundo.com. Helst þarftu að kunna frönsku eða spænsku til að vera á honum. Skáld heimsins sendu nýlega frá sér yfirlýsingu gegn þjóðarmorðum í Palestínu og til stuðnings skáldum á Gaza og ljóðlist þeirra. Á heimasíðunni eru tenglar á skáld frá ýmsum löndum, þar á meðal í arabaheiminum. Á slóðinni: http://ageddim.jeeran.com/archive/2009/1/770560.html
má finna þennan póst í heild sinni en rétt er að vara við myndinni sem sett er fremst, hún er óhugnanleg og ekki fyrir viðkvæma.

Mestmegnis eru þetta suður-amerísk skáld en þarna eru þó ljóðskáld út um allar trissur. Í raun þætti mér ekki vitlaust ef samsvarandi samtök, íslensk, sendu frá sér svipaða yfirlýsingu, þó ekki væri nema til að minna á að öll ljóðlist er með einhverjum hætti pólitísk, sé sú skilgreining ekki þrengd niður úr öllu valdi.
Kær kveðja,
Hermann

--- On Fri, 1/9/09, jón örn <jon...@gmail.com> wrote:

> From: jón örn <jon...@gmail.com>
> Subject: [Ljóðlistarlistinn] Re: Við erum að ritstýra Sjón - núna
> To: ljod...@googlegroups.com
> Date: Friday, January 9, 2009, 7:46 AM
> Æ Arngrímur þetta er nú meira ruglið. Ég gæti farið
> að skrifa upp öll
> þau samtöl sem við höfum átt undanfarið um þetta
> mál en ég þreyti ekki
> lesendur með miklu máli um svo ógnarlítið efni að
> öðru leyti en þessu:
> Nafnleysi er gríðarlega mikilvægt lýðræðislegt tæki
> í umræðum í
> samtímanum, hvort sem er til að koma sögu á hreyfingu
> eða leitast við
> að greina samtímann á netinu. Það er vandmeðfarið og
> að sönnu er mest
> um píp og fjas og sóðaskap og mjög oft yfirgengilegan..
Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages