Apaflasa kynnir: BISCAYNE BLVD

17 views
Skip to first unread message

Ofeigur Sigurdsson

unread,
May 22, 2009, 12:15:20 PM5/22/09
to Ljóðlist
Apaflasa kynnir vorútgáfu sína 2009: Bókverkið: BISCAYNE BLVD eftir
Ófeig Sigurðsson og Magnús Árnason.
Bókin verður kynnt og útgáfu hennar fagnað í bókverkabúðinni Útúrdúr
sem nú er til húsa í Nýlistasafninu við Grettisgötu, laugardaginn 23.
maí, klukkan 17.


Bókverkið BISCAYNE BLVD minnir á miðaldahandrit úr framtíðinni,
en bókin er tileinkuð minningu Geirlaugs Magnússonar, skálds, sem
dreymdi um að búa til vatnshelda buslu-Heimskringlu handa Snorra í
lauginni. BISCAYNE BLVD er ljóðabálkur í sílikoni, saminn undir
áhrifum af mangó-uppboðum í Miami-borg þar sem Ófeigur og Magnús settu
upp eina af þeim myrku og blautu innsetningum sem Magnús er þekktur
fyrir í myndlistinni.

Í fyrra las Ófeigur Sigurðsson upp úr sumarútgáfunni 2008 í bakgarði
Útúrdúrs við Njálsgötu, en það var ljóðabókin Provence í endursýningu.
Nú er Útúrdúr flutt inn í Nýlistasafnið en ef veður leyfir mun
upplestur úr sumarútgáfunni 2009: BISCAYNE BLVD vera í sólinni í
portinu en á safnglugganum sýnd systraverk bókverksins, því Magnús
Árnason hefur smíðað tíu veggmyndir úr sílíkoni sem kallast á við
kápumyndir ljóðabókarinnar. Myndverkin
eru eingöngu til sýnis á útgáfudag bókarinnar, en síðan til sölu í
Útúrdúr,
eins og líka BISCAYNE BLVD sem er bara gefin út í þrjátíu eintökum,
enda er hvert eintak stórvirki.

Allir eru velkomnir á útgáfuhátíðina sem byrjar klukkan fimm og
stendur til sex. Boðið verður upp á að snerta bókverkin, drekka
ávaxtabollu og hlusta á upplestur.

Reply all
Reply to author
Forward
0 new messages